Harðfiskur kom Mandy Moore á topp Kilimanjaro

Mandy Moore og nýja eldhúsið.
Mandy Moore og nýja eldhúsið. mbl.is/samsett mynd

Leikkonunni Mandy Moore er ýmislegt til lista lagt en við höfum undanfarna mánuði flutt reglulega fréttir af eldhúsbreytingum hjá henni sem tókust hreint glimrandi vel. 

Í viðtali við Bon Appetit-tímaritið á dögunum nefndi hún það í hjáverkum að hún hefði nýverið klifið Kilimanjaro. Blaðamaðurinn sem tók viðtalið kom af fjöllum enda hafði Moore ekki áður tjáð sig um gönguna. Aðspurð hvernig fjallgangan hefði gengið sagði hún að hún hefði gengið ljómandi vel en það sé fyrst og fremst snarlinu sem hún japlaði á allan tímann að þakka en hvort sem þið trúið því eða ekki þá tuggði hún harðfisk á leiðinni. 

Harðfiskurinn er reyndar ekki íslensk ýsa heldur villtur lax frá Alaska. Hvernig laxinn bragðast í þessu hlutverki skal ósagt látið en fyrir þá sem vilja prófa að panta herlegheiting þá er hægt að gera það HÉR.

mbl.is/Epic
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert