Nýttu afgangsvín á þennan snilldarhátt

Rauðvínið þarf ekki að fara til spillis þótt það hafi …
Rauðvínið þarf ekki að fara til spillis þótt það hafi ekki verið drukkið. mbl.is/

Það er algjör óþarfi að henda afgangsvíni þótt flaskan hafi ekki verið kláruð. Vín nýtist vel í matargerð og til að þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að víni skemmist er bráðsnjallt að hella því í klakaform og frysta.

Setjið vínmolana síðan í rennilásapoka og lofttæmið. Þetta getið þið átt í frysti og gripið ykkur mola þegar þarf. 

Algjört snilldarráð!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert