Svona nærðu kertavaxi úr fötum

Tatomm

Það getur verið argasta kvöl og pína að ná kertavaxti burt úr flíkum og vefnaðarvöru almennt ef réttu aðferðirnar eru ekki notaðar. Hér eru því skotheldar aðferðir sem eiga að duga í flestum tilfellum og ættu að bjarga því sem mögulega verður bjargað.

Byrja þarf á að ná sem mestu af vaxinu burt. Það er auðveldast með því að frysta eða kæla vaxblettinn og skafa sem mest af.

Ef um litlaust vax er að ræða getur verið gott að leggja eldhúspappír yfir og strauja með volgu straujárni yfir.

Ef vaxið er litað er betra að nota rauðspritt eða brennsluspritt til að ná blettinum úr eða jafnvel hreinsað bensín ef liturinn er sterkur.

Kertavaxleifar leysast upp við 60° hita og ef flíkin eða dúkurinn þolir þann hita er best að þvo hann strrax eftir blettahreinsunina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert