13 húsráð sem þú verður að kunna í eldhúsinu

Sykurpúðar koma í veg fyrir að púðursykurinn harðni.
Sykurpúðar koma í veg fyrir að púðursykurinn harðni. mbl.is/Pinterest

Við elskum allt sem auðveldar lífið í hversdagsleikanum, og eldhúsinu. Hér eru nokkur atriði sem gott er að hafa bak við eyrað. 

  • Settu brauðsneið á endana á köku sem búið er að skera til að hún þorni ekki.
  • Notaðu pappadisk á handpískarann svo að sletturnar fari ekki út um allt.
  • Piparkökumót eru frábær sem stenslar þegar þú vilt sáldra ákveðnu formi á kökuna.
  • Veltið súkkulaðibitum upp úr hveiti til að koma í veg fyrir að þeir endi allir á botninum í deiginu.
  • Möffinsform úr áli eru fullkomin í laginu þegar búa á til ætilegar ísskálar og þola allt.
  • Til að skera fullkomna tertusneið er ráð að setja hnífinn undir heitt vatn, þurrka hann svo og skera.
  • Þú getur notað kartöfluskrælara til að „krulla“ súkkulaðiræmur.
  • Ef þú vilt meiri gljáa á frosting-kremið á kökunni þinni, þá er hárblásarann fullkominn í það.
  • Egg við stofuhita færðu með því að skella eggjum beint úr ísskáp í heitt vatn í 3 mínútur.
  • Til að koma í veg fyrir að púðursykur harðni, má setja nokkra sykurpúða í ílátið með sykrinum.
  • Notið bökunarsprey á mæliskeiðar til að ekkert sitji eftir í skeiðinni þegar hellt er úr.
  • Tannþráður án bragðefna er frábær til að skera ostakökur.
  • Á að þeyta rjóma? Prófaðu að stinga skálinni og þeytaranum inn í ísskáp áður, þá verður rjóminn meira loftkenndur.
Kartöfluskrælari er fullkominn til að krulla súkkulaði.
Kartöfluskrælari er fullkominn til að krulla súkkulaði. mbl.is/Pinterest
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert