Ein svalasta eldhústækjalína sögunnar er eftir meistara Philippe Starck og hönnuð í samstarfi við Gorenje. Línan er hreint ótrúlega fögur svo ekki sé fastar að orði kveðið enda Starck þekktur fyrir að kunna sitt fag.
Línan er nú fáanleg hér á landi en það er Pro Gastro sem selur hana. Verðið kemur skemmtilega á óvart enda sambærilegt við það sem gengur og gerist ólíkt því sem margur hefði búist við.