Allt í einni skál frá Kellogg´s

Morgunkornaframleiðandinn Kellogg´s stendur fyrir herferð þessa dagana og bjóða upp …
Morgunkornaframleiðandinn Kellogg´s stendur fyrir herferð þessa dagana og bjóða upp á „allt í einni skál“. mbl.is/Kellogg´s

Hvaða barn hefur ekki dreymt um að blanda saman ótal morgunkornum, búa til eitt gott mix og byrja daginn eins og sannur meistari? Morgunkornaframleiðandinn Kellogg´s hefur nú svarað kallinu! Við erum að tala um Froot Loops, Rice Krispies, Apple Jacks, Frosted Flakes og Frosted Mini Wheats – allt í einum pakka, þó í takmarkaðan tíma.

Herferðin heitir „All Together Cereal“ sem er táknrænt fyrir málefnið – að allir eigi rétt á sér í þessum heimi, sama hvernig þú lítur út, hvaðan þú kemur eða hvern þú elskar. Vel gert Kellogg´s.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert