Lífið væri leiðinlegra án súkkulaðis

Gígja Sigríður Guðjónsdóttir.
Gígja Sigríður Guðjónsdóttir. Eggert Jóhannesson

Gígja Sigríður Guðjónsdóttir er mikill meistari þegar matreiðsla er annars vegar og heldur úti stórskemmtilegu matarbloggi þar sem hægt er að finna spennandi uppskriftir – allt frá einföldum heimilismat upp í alls kyns sælkeragóðgæti sem gaman er að reyna við. Að auki bloggar Gígja á Gott í matinn en hér deilir hún með lesendum dásamlegri uppskrift auk þess sem við fengum að leggja fyrir hana nokkrar klassískar spurningar.

Hefurðu alltaf haft áhuga á matargerð?

Ég hef alltaf haft áhuga á að borða góðan mat en ég held að það hafi ekki verið fyrr en ég flutti að heiman um tvítugt sem áhuginn fyrir matargerð kviknaði.

Uppáhaldsmatur?

Það er erfitt að velja, það er svo margt í uppáhaldi. Ég er rosalega hrifin af villibráð; hreindýri, rjúpum og gæs. Svo slær humar líka alltaf í gegn.

Hvaða eldhústækis gætirðu ekki lifað án?

Verður það ekki að vera Kitchen Aid-vélin? Það yrðu engar dýrindis tertur til ef ég hefði hana ekki.

Hvað ætlar þú að bjóða upp á í næsta matarboði?

Í næsta matarboði ætla ég að bjóða upp á æðislegt laxa-taco, svo er ég að fara að baka litla karamelluostakökubita fyrir veislu sem koma inn á Gott í matinn-bloggið á næstu dögum.

Jólamaturinn?

Ég og kærasti minn höfum haldið jólin heima hjá okkur síðustu ár og fengið móður mína og systur í heimsókn. Ég hef nýtt jólin í að elda rétti sem rata sjaldnar inn á borð til mín, líkt og hreindýr og rjúpur. Við erum ekki enn orðin vanaföst á aðalréttinn en eftir að við gerðum rjúpurnar með heimagerðri villibráðarsósu er líklegt að það muni festa sig í sessi.

Þessi jólin verður matseðillinn þessi:

Í forrétt er humar á franskbrauði með hvítlauksrjómasósu, rjúpur í aðalrétt og toblerone-ísterta í desert.

Uppáhaldskaka?

Klassísk súkkulaðiterta með djúsí smjörkremi.

Auðveldast að elda?

Kjúklingur eða fiskur í ofni með kartöflum er algjör „go to“-réttur hjá mér þegar ég nenni ekki að elda.

Fyrirmynd í eldhúsinu?

Í auknablikinu eru aðalfyrirmyndirnar mínar í eldhúsinu allir þessir flottu matarbloggarar hérna á Íslandi.

Hvaða fæðutegunda gætirðu ekki lifað án?

Lífið væri allavega leiðinlegra ef það væri ekkert súkkulaði.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert