IKEA vinnur Valentínusardaginn

Tilfinningatertan ógurlega... hver getur staðist svona dásemd?
Tilfinningatertan ógurlega... hver getur staðist svona dásemd? mbl.is/IKEA

Valentínusarverðlaunin í ár fara skuldlaust til IKEA sem tekur alla í bakaríið (bókstaflega) með nýjasta útspili sínu: Tilfinningatertunni.

Um er að ræða undurfagra rauða tertu með pralínsúkkulaðimús, mangó-ástaraldinkjarna og brownie-botni.

  • Til að toppa herlegheitin getur þú valið skilaboð til að líma á tertuöskjuna eins og:
  • Yndið mitt eina
  • Ég elska þig
  • Þakklæti
  • Mér þykir vænt um þig
  • Besta vinkona mín
  • Þú ert uppáhaldið mitt

Tertan kostar 1.990 krónur og ætti að slá í gegn hvar sem er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert