Matarmikið brauð með tómötum og rósmarín

Nýbakað brauð með tómötum og rósmarín er alltaf vel þegið.
Nýbakað brauð með tómötum og rósmarín er alltaf vel þegið. mbl.is/femina.dk

Við þurfum ekki að standa yfir pottunum öll kvöld vikunnar og töfra fram alls kyns rétti þegar matarmiklar brauðuppskriftir geta fyllt í skarðið. Þeir sem fá heita máltíð í hádeginu ættu að leyfa sér þetta girnilega brauð í kvöldmat, fyllt tómötum, rósmarín og flögusalti.

Matarmikið brauð með tómötum og rósmarín

  • 6 dl volgt vatn
  • 1 dl hrein jógúrt
  • 1 dl ólífuolía
  • 20 g ger
  • 1 kg hveiti
  • 20 g flögusalt, og smá auka
  • 8 litlir tómatar
  • 3 rósmaríngreinar

Aðferð:

  1. Blandið vatni saman við jógúrt og ½ dl af ólífuolíu í skál. Setjið hveiti og salt út í og hnoðið vel saman þar til deigið verður slétt.
  2. Látið deigið hefast í 3 tíma í hrærivélarskálinni með hreint viskastykki yfir.
  3. Setjið deigið ofan á bökunarpappír á bökunarplötu og ýtið litlum holum niður í deigið með fingrunum.
  4. Skerið tómatana til helminga og dreifið þeim ásamt rósamarín í götin og yfir deigið.
  5. Dreypið restinni af ólífuolíunni yfir deigið og stráið saltinu yfir. Látið hefast í ½ tíma.
  6. Bakið við 220° í 35 mínútur, þar til gyllt.
  7. Látið kólna á rist.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert