Leyniuppskrift Kardashian/Jenner klansins

Mynd sem Kendall Jenner deildi á Instagam af sér og …
Mynd sem Kendall Jenner deildi á Instagam af sér og móður sinni, Kris Jenner, sem var að hennar sögn að búa til guacamole ídífuna sem er sú allra besta í heimi. mbl.is/Instagram

Þessi uppskrift þykir taka öðrum fram þegar kemur að bragðgæðum og huggulegheitum. Hún er marglaga og kemur úr uppaskriftarbók Kardashian/Jenner fjölskyldunnar.

Hér er uppskrift að guacamole ídýfu sem sögð er sú allra besta í heimi og ekki ljúga eðalkvendin í Kardashian/Jenner fjölskyldunni.

Guacamole uppskrift Kris Jenner

  • 8 vel þroskuð avókadó, steinhreinsuð og tekin úr hýðinu
  • 1 krukka (240 ml) salsa sósa
  • 1 tsk. hvítlaukssalt
  • 1 tsk. laukduft
  • salt og pipar

Að auki:

  • ½ sítróna í sneiðum
  • 1½ bolli sýrður rjómi
  • 1½ bolli rifinn ostur
  • 4 vel þroskaðir tómatar, kjarninn skorinn úr og skorinn í litla bita. Þerrið til að fjarlægja umfram vökva.
  • 8 scallion laukar, fínt saxaðir
  • 1 krukka af svörtum ólífum í sneiðum, þerraðar til að fjarlægja umfram vökva
  • tortilla flögur

Aðferð:

  1. Maukið avókadóið. Hrærið salsasósunni, hvítlaukssaltinu og laukduftinu saman við. Saltið og piprið vel.
  2. Setjið guacamoleið í mót eða ílát með flötum botni. Dreifið vel úr með sleif. Kreistið sítrónusafann yfir. Setjið næst sýrða rjómann vandlega yfir, setjið því næst rifna ostinn. Setjið ólífurnar upp við hliðarnar og því næst tómatana og loks scallion laukana í miðjuna. Geymist í kæli í allt að fjórar klukkustundir.
  3. Berið fram með tortilla flögunum.
Hin ameríska konungsfjölskylda í öllu sínu veldi - eða að …
Hin ameríska konungsfjölskylda í öllu sínu veldi - eða að minnsta kosti kvenleggur hennar. mbl.is/
Matreiðslubók Kris Jenner.
Matreiðslubók Kris Jenner. mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert