Grillgræjan sem þú verður að eignast

mbl.is/Amazon

Þessi græja er svo óheyrilega svöl að það hálfa væri nóg. Að því sögðu þá höfum við ekki hugmynd um hvort hún er vönduð eða yfir höfuð nauðsynleg en bara það að mæta með skjalatösku í grillpartý er bara það svalasta sem til er. Maður kemst kannski upp með að vera í jakkafötum líka, mögulega með hatt og klárlega svarta grillhanska.

Þetta sett er sem sagt eitthvað sem allir verða að eignast og það frábæra við það er verðmiðinn sem er einungis 37 dollarar eða tæpar 5.000 krónur.

Græjan fæst á Amazon og hægt er að skoða hana nánar HÉR.

mbl.is/Amazon
mbl.is/Amazon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert