Til hamingju með afmælið lúser!

mbl.is/Facebook

Hvað myndir þú gera ef þú hefðir í mesta sakleysi pantað fallega afmælisköku handa tveggja ára dóttur þinni og í stað þess að á henni stæði eitthvað fallegt í tilefni dagsins væri áletruni Til hamingju með afmælið lúser!

Fyrir ykkur sem haldið að þetta sé grín þá er það alls ekki svo en blessunarlega hafði móðir stúlkunnar húmor fyrir atvikinu enda ekki um ásetning að ræða. Hafði hún beðið um að á kökunni stæði orðið lizard sem þýðir eðla og er nokkuð líkt orðinu loser.

Atvikið átti sér stað í Bandaríkjunum og var kakan pöntuð frá versluninni Walmart. Móðirin greindi ekki frá atvikinu fyrr en mörgum mánuðum síðar til að koma starfsmanninum sem mistökunum olli ekki í vandræði. Myndin hefur farið eins og eldur í sinu - þá ekki síst vegna svipsins á dótturinni en myndin er tekinn þegar móðir hennar segir henni hvað standi á kökunni.

Hægt er að skoða Facebook póst móðurinnar HÉR.

Töluverð vonbrigði verður að segjast...
Töluverð vonbrigði verður að segjast... mbl.is/Facebook
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert