Lampar eru alls konar og afar gagnlegir eins og búast má við. Sumir eru fallegir, aðrir frumlegir og svo eru það þeir sem taka hugmyndina um lampa og sprengja hana í tætlur.
Þessir stórkostlegu lampar frá PAMPSHADE í Japan eru eins og brauð í laginu og henta bæði sem borðskraut og vegglampi. Getið þið ímyndað ykkur huggulegt matarboð þar sem borðið er lýst upp með baguette-lömpum?
Ritstjórn Matarvefjarins stendur hið minnsta á öndinni af hrifningu og íhugar að panta nokkur eintök.
Hægt er að skoða dásemdina nánar HÉR.
View this post on Instagram謎のブロマイドをどうぞ #maisonetobjet #maisonetobjet2018 #bread #breadlamp #lamp #pampshade #paris
A post shared by PAMPSHADE by Yukiko Morita (@pampshade_by_yukiko_morita) on Sep 12, 2018 at 1:31am PDT
View this post on InstagramA post shared by PAMPSHADE by Yukiko Morita (@pampshade_by_yukiko_morita) on Oct 17, 2017 at 8:41pm PDT