Marsípanstangir með lakkrís og súkkulaði

Marsípanstangir eru fullkomnar með góðum kaffibolla.
Marsípanstangir eru fullkomnar með góðum kaffibolla. mbl.is/Columbus Leth

Hér er uppskrift að einstaklega bragðgóðum marsípanstöngum með kaffinu. Þessar eru hjúpaðar hvítu súkkulaði og með lakkrís.

Marsípanstangir með lakkrís og súkkulaði

  • 200 g marsípan
  • 30 g safi úr ástaraldin
  • 100 g hvítt súkkulaði
  • ½ tsk. lakkrísduft

Skraut:

  • 100 g hvítt súkkulaði
  • 1 tsk. frostþurrkað ástaraldinduft
  • 1 tsk. lakkrísduft

Aðferð:

  1. Rífið marsípanið gróflega og setjið í skál.
  2. Bætið ástaraldinsafanum saman við og blandið vel saman. Setjið í kæli í 1 tíma.
  3. Bræðið súkkulaðið í skál yfir vatnsbaði og smakkið til með lakkrísdufti.
  4. Formið stangir úr marsípanmassanum eða notið smákökuform til að búa til litlar fígúrur.
  5. Dýfið marsípaninu í súkkulaðið  og skreytið með ástaraldin duftinu og lakkrísdufti.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert