Pastarétturinn sem mun æra bragðlaukana

Alveg tjúllaður pastaréttur! Hér eru spínat, sveppir og karamelluseraður laukur …
Alveg tjúllaður pastaréttur! Hér eru spínat, sveppir og karamelluseraður laukur að tala saman. mbl.is/Stine Christiansen/Skovdal & Skovdal

Hvernig líst þér á að smakka pastarétt með spínati, sveppum og karamelliseruðum lauk? Það mun enginn sitja við matarborðið án þess að fá vatn í munninn yfir þessum rétti.

Pastarétturinn sem þú munt slefa yfir (fyrir 4)

Karamelliseraður laukur:

  • 1 msk. smjör
  • 3 meðalstórir laukar, skornir í þunnar skífur
  • salt á hnífsoddi
  • 1 tsk. balsamedik

Sveppir:

  • Ólífuolía
  • 150 g ferskir sveppir, blandaðir
  • 1 tsk. sojasósa

Annað:

  • 500 g fettucinepasta
  • u.þ.b. 300 g ferskt spínat
  • 1,5 dl rjómi
  • ½ dl vatn eða grænmetiskraftur
  • 50 g fínrifinn parmesan
  • Flögusalt og pipar

Aðferð:

Karamelliseraður laukur:

  1. Bræðið smjörið á pönnu og steikið laukinn. Látið hann veltast um á pönnunni á meðalhita í 25-30 mínútur.
  2. Laukarnir eiga að verða gylltir á lit og mjúkir þegar þeir byrja að karamelliserast. Bætið salti út á og balsamediki og leggið til hliðar.
  3. Byrjið að sjóða pastað samkvæmt leiðbeiningum.

Sveppir:

  1. Hitið olíu á pönnu og steikið sveppina á háum hita þar til gylltir. Kryddið með salti og pipar – sirka fimm mínútur.
  2. Leggið lauk og spínat á pönnuna og veltið saman í nokkrar mínútur á lágum hita. Bætið rjómanum út á pönnuna ásamt parmesan og salti og leyfið sósunni að ná suðu.
  3. Sigtið vatnið frá pastanu og setjið pastað út á pönnuna. Látið malla í nokkrar mínútur og leggið því næst lok yfir í nokkrar mínútur til viðbótar. Piprið og berið fram.   
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert