KEA skyr með mangó valið besta skyrið

mbl.is/MS

Matvælasýningin International Food Contest 2019 fór fram nú í byrjun október í Herning í Danmörku og vakti íslenskt skyr mikla lukku meðal dómara. Nýtt laktósalaus KEA skyr með mangó í botni dósarinnar var valið besta skyr keppninnar og hlaut þar af leiðandi sérstök heiðursverðlaun. Langt og strangt gæðamat dómara fer fram áður en verðlaunin eru tilkynnt og er þar m.a. horft til bragðs, útlits og áferðar skyrsins.

Þessi verðlaun eru sérstaklega ánægjuleg fyrir þær sakir að í sumar var nýtt og endurbætt KEA skyr kynnt hér á landi í tilefni þess að 30 ár voru liðin frá því skyrið kom fyrst á markað. Meðal nýjunga voru tvær tegundir af hreinu skyri með bragðgóðum ávöxtum í botni dósarinnar, annars vegar mangó og hins vegar jarðarber. Íslendingar hafa tekið nýja KEA skyrinu fagnandi og óhætt að segja að það sama hafi verið uppi á teningnum hjá dómurunum í Herning.

Heildarlista yfir verðlaun Mjólkursamsölunnar á matvælasýningunni International Food Contest 2019 má sjá hér fyrir neðan, en fyrirtækið hlaut samtals 11 verðlaun fyrir bæði KEA og Ísey skyr og var því einstaklega sigursælt í keppninni.

Heiðursverðlaun í skyrflokki

  • KEA skyr - mangó í botni 200 g

Gullverðlaun

  • Ísey skyr - kókos 170 g
  • Ísey skyr - jarðarber 500 g
  • Ísey skyr - bláber og jarðarber 500 g
  • KEA skyr - jarðarber í botni 200 g
  • KEA skyr kolvetnaskert - jarðarber og bananar 200 g

Silfurverðlaun

  • KEA skyr kolvetnaskert - vanilla 200 g
  • Ísey skyr - bökuð epli 170 g
  • Ísey skyr - jarðarberjabaka 170 g

Bronsverðlaun

  • Ísey skyr - vanilla 170 g
  • KEA skyr kolvetnaskert - kaffi og vanilla 200 g
  • Ísey skyr próteindrykkur - jarðarber og bananar 300 ml
mbl.is/MS
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert