Guðrún Ýr á Döðlum og smjöri segir að þessir snúðar minni dálítið á sænskar semlur. Kardimommubragðið sé áberandi og möndlumassinn ómissandi. Ef þið eruð í bakstursstuði er þetta sannarlega uppskrift sem þið verðið að prófa.
Snúðar með marsípani og kardimommum
- 200 ml mjólk
- 11 g þurrger (1 pk)
- 2 egg
- 100 g smjör, við stofuhita
- 1 msk. sykur
- 500 g hveiti (blátt Kornax)
- 1½-2 tsk. kardimommur
- ½ tsk. salt
Færið mjólkina í pott og hitið þangað til hún er ylvolg, setjið í hrærivélina og gerið saman við. Hrærið saman með krók og leyfið að hvíla í stutta stund. Takið saman hin hráefnin á meðan. Blandið eggjum, smjöri og sykri saman við og hrærið á litlum hraða. Mælið hveiti, kardimommur og salt saman og blandið út í hrærivélina smávegis í einu, þangað til allt hveitið er komið saman við. Leyfið vélinni að vinna í 2-3 mín. Leyfið deiginu að hvíla í klukkustund undir volgu viskastykki.
Fylling
- 150 g smjör, við stofuhita
- 150 g sykur
- 150 g marsípan
- 1 tsk. kardimommur
- 2 tsk. vanillusykur. Setjið öll hráefnin saman í skál og best er að vinna þau saman með hendinni þangað til þau hafa blandast vel saman.
Samsetning
- Rúllið deigið út í ferning u.þ.b. 60×40 cm eða hálfan cm að breidd. Dreifið fyllingunni yfir deigið, gott er að gera þetta með sleikju eða spaða. Leggið deigið saman til helminga á styttri hliðina og rúllið yfir nokkrum sinnum með kökukefli til að þynna deigið aðeins og blanda fyllingunni aðeins saman við deigið sjálft.
- Skerið deigið í ræmur u.þ.b. 2 cm á breidd. Takið hverja ræmu og snúið upp á hana, haldið svo í annan endann og snúið deiginu upp hring í kringum fingurna sem halda í endann. Passið að seinni endinn fari undir snúðinn. Einnig er hægt að rúlla deiginu upp og skera í snúða, setja á plötu eða eldfast mót þétt saman.
- Leyfið snúðunum að hefast í 30 mín. Hitið ofn á 200°C. Eftir að snúðarnir hafa hefast brjótið þið egg í skál og penslið yfir snúðana. Fallegt er að setja perlusykur yfir þá en ekki nauðsynlegt. Bakið snúðana í 20-25 mín. eða þangað til þeir eru orðnir fallega brúnir.
- Æðislegt að eiga poka af þessum í frystinum eða njóta þeirra bara strax – smá hættulegt, alveg séns á þú fáir þér einn og svo annan og kannski einn í viðbót!
Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir