Heimagerðar franskar sem þú munt ekki geta lagt frá þér

Þú munt sjá eftir því ef þú smakkar ekki þessar!
Þú munt sjá eftir því ef þú smakkar ekki þessar! mbl.is/Snorri Guðmundsson

Hér eru þær allra trylltustu franskar sem þú munt smakka í boði Snorra Guðmunds. En þessar eru það ómótstæðilegar að slegist er um síðustu frölluna á disknum.
Snorri, sem heldur úti síðunni Matur og myndir, býður okkur upp á harissa-kryddaðar franskar með tzatziki-sósu sem er ómissandi með.

Frönskurnar sem þú munt ekki geta lagt frá þér (sem meðlæti fyrir 2)

  • 40 ml japanskt majónes
  • 40 ml sýrður rjómi
  • 2 tsk. tzatziki-kryddblanda, Kryddhúsið
  • Salt eftir smekk
  • 400 g franskar kartöflur, 400 g, Snorri notar Aviko Super Crunch
  • 0,5 tsk. marokkósk harissa-kryddblanda, Kryddhúsið
  • 0,5 tsk. hvítlauksduft, Kryddhúsið
  • 0,5 tsk. paprikuduft, 0,5 tsk., Kryddhúsið
  • 3 g kóríander eða steinselja

Aðferð:

  1. Hrærið saman majónes, sýrðan rjóma og tzatziki kryddblöndu. Smakkið til með salti og geymið í kæli.
  2. Setjið frönsku kartöflurnar í stóra skál og veltið upp úr olíu og salti.
  3. Dreifið frönsku kartöflunum yfir bökunarplötu með ofnpappír og bakið eftir leiðbeiningum á umbúðum en hrærið í 2-3 sinnum yfir bökunartímann.
  4. Saxið kóríander eða steinselju mjög smátt.
  5. Færið bökuðu frönsku kartöflurnar í stóra skál á meðan þær eru enn heitar og kryddið með harissa-kryddi, hvítlauksdufti og papriku. Veltið kartöflunum vel upp úr kryddinu og stráið söxuðum kóríander eða steinselju yfir og blandið saman við frönsku kartöflurnar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert