Nýtt After Eight sem kemur á óvart

Nýtt After Eight lítur dagsins ljós - nú með gini …
Nýtt After Eight lítur dagsins ljós - nú með gini og tonic. mbl.is/Nestle/Metro.co.uk

Við erum ekki viss um hvort hér sé um að ræða skrítna eða stórkostlega súkkulaðinýjung.

Framleiðendur súkkulaðsins After Eight tilkynntu nýverið nýjung í súkkulaðinu – og það með gin- og tónikbragði. Fyrir þá sem eru í einhverjum vafa, þá er myntan ennþá í súkkulaðinu og sama dökka súkkulaðihúðin sem þekur hverja plötu – sem sagt allt á sínum stað, bara líka með gini og tónik. Hér er samt ekki um áfengt súkkulaði að ræða.

Talsmaður After Eight, Debbie Bowen, sagði í samtali að gin væri vinsæll drykkur og það væri fátt betra en að sameina góðan drykk með ljúffengri myntu og dökku súkkulaði. En þess má geta að súkkulaðiðiplöturnar hafa haldið vinsældum í tæp 60 ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert