Vöfflur með bláberjum, súkkulaðirjóma og saltri karamellu

Ljósmynd/Linda Ben

Klassískar vöfflur með æðislegum súkkulaði rjóma, saltri karamellu og nóg af bláberjum. Algjört lostæti sem þú verður að smakka. Þessi dásamlega uppskrift er úr smiðju Lindu Ben sem klikkar ekki.

„Leynitrikkið til að fá vöfflurnar fallega brúnar er að setja örlítið kaffi út í deigið, það finnst ekki á bragðinu en hefur heilmikið að segja fyrir útlitið. Það er nú samt í góðu lagi að sleppa kaffinu ef þið viljið,“ segir Linda og við þökkum kærlega fyrir þetta góða ráð.

Vöfflur með bláberjum, súkkulaðirjóma og saltri karamellu

  • 2 egg
  • 40 g sykur
  • 2-3 dl AB-mjólk frá Örnu mjólkurvörum
  • 150 g hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • ¼ tsk. salt
  • 3 msk. brætt smjör
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 2 tsk. sterkt kaffi (má sleppa)
  • 500 ml rjómi frá Örnu mjólkurvörum
  • 100 g súkkulaði
  • bláberjasulta
  • fersk bláber
  • sölt karamella

Aðferð:

  1. Hrærið saman egg og sykur þar til létt og ljóst. Bætið því næst súrmjólkinni saman við.
  2. Blandið saman hveiti, lyftidufti og salti, bætið því svo út í eggjablönduna.
  3. Bræðið smjörið og blandið því saman við ásamt vanilludropum og kaffinu.
  4. Hrærið blönduna þar til kekkjalaus (gott að láta standa í smá stund) og bakið svo vöfflurnar á vöfflujárni.
  5. Útbúið söltu karamelluna samkvæmt uppskrift.
  6. Bræðið súkkulaðið í örbylgju eða yfir vatnsbaði. Setjið rjómann í skál og byrjið að þeyta, þegar hann er byrjaður að þykkna hellið þá súkkulaðinu saman við í mjórri bunu og þeytið þar til tilbúinn.
  7. Setjið bláberjasultu á vöfflurnar ásamt súkkulaðirjómanum, setjið bláberin yfir og svo söltu karamelluna.
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert