Hér erum við með geggjaða uppskrift að Chili con carne sem er ein frægasta kássa veraldar. Nú móðgast eflaust sumir og fullyrða að chili con carne sé pottréttur – og það má vel vera en kássur eru afskaplega vanmetin fyrirbæri og það allra besta sem hægt er að gæða sér á á köldum vetrardegi.
Chili con Carne
Fyrir sex manns – einfaldur réttur þótt innihaldslýsingin sé löng.
Með chiliréttinum er afbragðsgott að bera fram hrísgrjón, maísbaunir, salat og kalda sósu.
- 2 msk. olía
- 2 msk. smjör
- 2 stk. gulir laukar
- 4 stk. hvítlauksrif
- 1 msk. kúmen, heilt
- 1⁄2 stk. gul paprika
- 1⁄2 stk. rauð paprika
- 1⁄2 stk. græn paprika
- 500 g nautahakk
- saltflögur, eftir smekk
- grófur svartur pipar, eftir smekk
- chiliflögur, eftir smekk
- 1 msk. worchestershiresósa
- 2 stk. grænmetiskraftur
- 1 dós niðursoðnir saxaðir tómatar
- 1 dós bakaðar baunir
- 1 dós nýrnabaunir
- 1 msk. hunang
- 1 box rjómaostur með svörtum pipar
- 100 g suðusúkkulaði
- steinselja til að skreyta með
Aðferð:
- Hitið olíu og smjör á pönnu eða notið djúpan pott.
- Skerið lauk og hvítlauk smátt og bætið við ásamt kúmeni.
- Látið laukinn verða glæran og finnið dásamlegan ilminn fylla eldhúsið.
- Skerið paprikurnar i teninga og bætið við.
- Látið svitna í pottinum.
- Setjið nautahakkið saman við og látið það brúnast með grænmetinu.
- Kryddið með salti, pipar, chiliflögum og worchestershiresósu.
- Farið varlega með chiliflögurnar. Það þarf sjaldnast mikið af þeim.
- Opnið dósirnar og setjið innihaldið í pottinn.
- Hrærið og látið suðuna koma upp og lækkið þá hitann eitthvað.
- Látið malla hægt og rólega í klukkutíma ef hægt er.
- Setjið hunang, rjómaost og súkkulaði út í og látið það bráðna með.
- Skreytið með steinselju þegar borið er fram.
Höfundur: Theodóra J. Sigurðardóttir Blöndal
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita ...
Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl