Kvöldverðurinn sem klikkar ekki

Hér erum við með uppskrift sem ætti að æra óstöðugan enda algjör veisla. Djúpsteikur þorskur í orlí í tortillu sem er mögulega tvenna sem er hættulega góð!!!

Djúpsteiktur fiskur í tortillu

Uppskrift fyrir tvo

  • 150 g þorskur‍
  • 5 g paprikuduft
  • 4 g kóríanderduft
  • 3 g hvítlauksduft
  • 3 g cumin
  • 400 ml bjór
  • 370 g hveiti (70 g í kryddblöndu og 300 g í orlydeig)
  • 15 g salt
  • 10 g matarsódi
  • Tortilla
  • Hvítlaukssósa
  • Sriracha sósa
  • Ferskt grænmeti (salat, gúrka, tómatar, avókadó, laukur)
  • Olía til djúpsteikingar

Aðferð

Fiskur

  1. Skerið fisk í fjóra bita.
  2. Blandið saman 70 g hveiti, paprikudufti, kóríanderdufti, hvítlauksdufti og cumin.
  3. Í aðra skál fara 300 g hveiti, bjór, salt og matarsódi.
  4. Veltið fiskinum upp úr kryddblöndunni og leggið svo í orlydeigið.
  5. Djúpsteikið í 4 mín.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert