Súpan seldist samstundis upp

Súpan sem allt varð vitlaust útaf.
Súpan sem allt varð vitlaust útaf.

Við sögðum frá því á mánudaginn að ein besta súpa landsins væri loksins væntanleg í verslanir og létu viðbrögðin ekki á sér standa. Súpan seldist samstundis upp og hafa verslunarstjórar greint frá örvæntingarfullum símtölum fólks sem vill fá súpu.

Þær gleðifréttir berast nú að meiri súpa kemur í verslanir í dag og ættu því allir að geta gætt sér á hinni goðsagnakenndu kókos-karrí súpu Kaju en nokkuð ljóst er að hér er á ferðinni vinsælasta súpa landsins og er hún vel að þeim titli komin því hún er í senn einstaklega bragðgóð og afar holl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert