María Gomez á Paz.is leikur hér á als oddi en hún veit fátt skemmtilegra en að fullkomna uppskriftir sem hún hefur dálæti á. Þessar kökur sá hún á kaffihúsi nýverið og ákvað að baka sína eigin útgáfu af þeim.
Smákökur með vanillukremi og mjúkri miðju
Kökur
- 230 g smjör við stofuhita, jafnvel mýkra
- 110 g sykur
- 200 g púðursykur
- 2 egg (best við stofuhita)
- 2 tsk. vanilludropar
- 375 g hveiti
- 1 tsk. matarsódi
- 1 tsk. fínt borðsalt
- 360 g dökkir súkkulaðidropar eða smátt skorið dökkt
- súkkulaði
Krem
- 250 g mjúkt smjör
- 400 g flórsykur
- 1 tsk. vanilludropar
- 3 msk. rjómi
Kökur
- Hitið ofninn á 175 °C blástur.
- Þeytið vel saman allan sykur og smjör þar til það er orðið létt og ljóst.
- Bætið næst við vanilludropum og einu eggi í einu og hafið hrærivélina í gangi á meðan.
- Takið aðra skál og sigtið í hana hveiti, matarsóda og salt og leggið til hliðar.
- Leyfið deiginu í hrærivélarskálinni að þeytast vel saman þar til það er orðið fallega loftkennt og ljóst (gott að þeyta eins og í 5-6 mínútur).
- Bætið þá hveitinu út í meðan vélin er enn í gangi í 2-3 skömmtum og hrærið allan tímann þar til orðið fallega klístrað deig.
- Bætið að lokum við súkkulaðidropum og hrærið annaðhvort á lægsta í hrærivél eða með sleif þar til súkkulaðið er nægilega blandað við deigið (passa að hræra ekki of mikið ef gert er í hrærivél, þá brotnar súkkulaðið).
- Mótið næst kúlur úr deiginu með ísskeið eða 2-3 msk. af deigi, hver kúla á að vera á stærð við borðtenniskúlu eða golfkúlu.
- Raðið níu kúlum á bökunarplötu með bökunarpappa og þrýstið þumalputta niður í miðja kúluna svo það komi dæld.
- Bakið svo hverja plötu í 12-15 mínútur. Ég bakaði mínar í 12 mín. en þær eru eins og smá hráar nýkomnar úr ofninum, en þannig eiga þær að vera til að fá mjúka miðju.
- Ef ykkur finnst þær ekki nógu flatar þegar þær koma úr ofninum má þrýsta á þær með spaða og kremja þær aðeins niður.
- Látið standa á heitri bökunarplötunni í eins og 10 mínútur áður en þið færið yfir á grind og látið kólna þar alveg áður en kremið er sett á.
Krem
- Þeytið smjörið mjög vel og lengi þar til það er orðið loftkennt, mjúkt og ljóst (alveg í góðar 15 mínútur á háum hraða).
- Sigtið næst flórsykur út í smjörið og bætið við vanilludropum og rjóma og stillið fyrst á lítinn kraft svo flórsykur fari ekki um allt.
- Hækkið svo upp í mjög mikinn hraða og þeytið í aðrar 15 mínútur svo kremið verði fallega mjúkt, loftkennt og ljóst.
- Þegar kökurnar hafa alveg kólnað setjið þá kremið í sprautupoka með stjörnustút og sprautið á eina köku og lokið svo með annarri ofan á. Það má líka smyrja kreminu á ef þið viljið sleppa við að sprauta því.