Nýjasta æðið á TikTok sem er að gera allt vitlaust

Egg og avókadó er vinsælt ofan á ristað brauð.
Egg og avókadó er vinsælt ofan á ristað brauð. Mbl.is/TikTok_@FeelGoodFoodie

Ef þú  ert að leitast eftir nýjum hugmyndum fyrir ristað brauð og avokadó (eða svokallað avocado toast) – þá er þetta aðferðin sem er að gera allt vitlaust á TikTok.

Svo virðist sem fólk sé að taka harðsoðin egg og raspa þau yfir ristað brauð með avokadó. Matgæðingar þarna úti segja að aðferðin gefi brauðinu alveg nýja vídd. En það var TikTok-arinn @healthyishfoods, sem birti þessa aðferð fyrst eða fyrir um mánuði síðan. Það myndband hefur fengið yfir 3,5 milljónir í áhorf, ef einhver er að rýna í þær tölurnar. Og þess má geta að myllumerkið #gratedegg, hefur náð yfir 13,3 milljónir í áhorf. Hér ber þó að taka fram að best sé að leyfa egginu að kólna áður en þú byrjar að raspa það niður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert