Gleðipinnar styðja SOS Barnaþorpin

Rúrik Gíslason, einn af velgjörðasendiherrum SOS Barnaþorpanna, afhenti Gunnu á …
Rúrik Gíslason, einn af velgjörðasendiherrum SOS Barnaþorpanna, afhenti Gunnu á Stælnum fyrstu upplýsingamöppuna, með upplýsingum um styrktarbarn American Style í Skipholti.

Starfsfólk veitinga- og afþreyingarfélagsins Gleðipinna hefur ákveðið að styðja við starf SOS Barnaþorpanna með því að gerast SOS-foreldrar 18 barna í SOS barnaþorpum víðsvegar um heiminn. Það þýðir að hver staður sem tilheyrir Gleðipinnum styrkir eitt barn í SOS barnaþorpi. Rúrik Gíslason, einn af velgjörðarsendiherrum SOS Barnaþorpanna á Íslandi, afhenti Guðrúnu Hilmarsdóttur, Gunnu á Stælnum, upplýsingar styrktarbarn American Style í Skipholti.

400 starfsmenn af um 20 þjóðernum

„Gleðipinnafjölskyldan okkar er stór og fjölbreytt en hjá okkur starfa um 400 starfsmenn af um 20 þjóðernum. Það er því afar viðeigandi að taka þátt í starfi SOS Barnaþorpanna með þessum hætti, enda starfa þau í 137 löndum víðs vegar um heiminn. Það er táknrænt að Gunna á Stælnum taki á móti fyrsta styrktarbarninu, en hún er elsti starfsmaður Gleðipinna, hefur stýrt American Style í Skipholti í 25 ár og alið upp fjöldann allan af íslenskum fyrirmyndarbörnum," segir Jóhannes Ásbjörnsson, talsmaður Gleðipinna. Jóhannes fór einmitt nýverið ásamt Rúrik Gíslasyni, mági sínum, til Afríku að kynna sér starf SOS Barnaþorpanna og heimsóttu þeir styrktarbörn sín í Malaví. Afraksturinn má sjá í þættinum Rúrik og Jói í Malaví á Sjónvarpi Símans.

Muni veita starfsfólki mikla ánægju

„SOS mömmur hafa í 73 ár verið máttarstólpinn í starfsemi SOS barnaþorpanna og að afhenda Gunnu á Stælnum fyrstu upplýsingamöppuna var sérstaklega ánægjulegt svona nálægt mæðradeginum. „Þessi stuðningur Gleðipinna mun ekki aðeins hafa jákvæð áhrif á líf þessarra 18 barna heldur einnig keðjuverkandi áhrif á komandi kynslóðir, það er, afkomendur þeirra til framtíðar. Við erum sannfærð um að það muni veita starfsfólki Gleðipinna mikla ánægju að fylgjast með uppvexti styrktarbarna sinna um ókomin ár,” segir Hans Steinar Bjarnason, upplýsingafulltrúi SOS Barnaþorpanna á Íslandi.

Á tíunda þúsund SOS-foreldrar á Íslandi

Með þessum stuðningi komast Gleðipinnar í hóp svokallaðra Velgjörðafyrirtækja SOS og vilja þannig hvetja viðskiptavini sína sem og starfsmenn til þess að gerast SOS-foreldrar en það er gert með afar einföldum hætti ásos.is. Á tíunda þúsund Íslendinga eru SOS-foreldrar sem framfleyta barni í SOS barnaþorpi með mánaðarlegu framlagi og fylgjast með uppvexti barnsins í gegnum bréf og myndir. 

SOS Barnaþorpin eru stærstu óháðu hjálparsamtök heims sem einblína á börn án foreldraumsjár og ósjálfbjarga barnafjölskyldur.

Hans Steinar Bjarnason, upplýsingafulltrúi SOS, afhenti Jóhannesi Ásbjörnssyni, talsmanni Gleðipinna, …
Hans Steinar Bjarnason, upplýsingafulltrúi SOS, afhenti Jóhannesi Ásbjörnssyni, talsmanni Gleðipinna, möppurnar með upplýsingum um öll styrktarbörnin átján.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert