„Þið eigið eftir að elska þessa rabarbarajógúrtshráköku. Hún er svo ótrúlega góð, inniheldur engan viðbættan sykur og stútfull af hollustu sem nærir líkama og sál!“ segir Linda Ben um þessa köku sem hún býður lesendum upp á.
„Hún inniheldur döðlur, kasjúhnetur, hnetusmjör, hörfræ og hafra sem maður smellr í blandara og maukar saman. Deiginu þrýstir maður svo í form og gott trix til að ná botninum alveg sléttum er að nota bollamál til að þrýsta deiginu niður. Svo blandar maður saman rabarbarajógúrti, þeyttum rjóma og smellir yfir botninn, skreytir með smá rabarbarasultu og smellir svo í frystinn. Þá er kakan tilbúin til að skera í bita og njóta!“
„Hægt að útbúa þessa köku með góðum fyrirvara og geyma inni í frysti í lokuðu íláti. Hentar vel í veislur þar sem maður vill bjóða upp á fjölbreytt úrval eftirrétta. Sjálf elska ég að eiga þessa köku í frysti til að geta tekið út eina sneið ef mig langar í eitthvað gott.“
„Rabarbarajógúrtin er svo dásamlega góð og smellpassar með þessari köku. Það er ekki of sætt, heldur kemur með þennan íslenska sumarfíling sem við elskum flestöll. Rabarbarajógúrtin er sérstök sumarvara frá Örnu og er núna í nýjum og ennþá umhverfisvænni umbúðum.“
Aðferð: