Ódýr en samt ótrúlega falleg borðstofuljós

Kúlulaga ljós frá HAY, sómir sér vel yfir þessu borði.
Kúlulaga ljós frá HAY, sómir sér vel yfir þessu borði. Mbl.is/HAY

Svokölluð pappaljós eða lampar, hafa notið mikilla vinsælda síðustu misseri og munu sannarlega halda áfram að gera. Hér eru nokkur ljós sem munu sóma sér vel yfir borðstofuborðinu eða í stofunni og skapa notalega stemningu.

Ljósin eru hálfgert afturhvarf og kitla nostalgíutaugarnar, sem gerir þau enn meira spennandi.

Alla jafna eru pappaljós fremur hagstæð í innkaupum og fyrir þá sem vilja ólmir eignast slík ljós án þess að kosta miklu til mælum við með einfaldri leit á netinu því þar kennir ýmissa grasa og hægt að fá ljósin í allskonar stærðum og litum.

Einstaklega löguleg borðstofuljós frá Le Klint.
Einstaklega löguleg borðstofuljós frá Le Klint. Mbl.is/Le Klint
Fallegt ljós frá danska framleiðandanum &tradition.
Fallegt ljós frá danska framleiðandanum &tradition. Mbl.is/&tradition
Ikea er alltaf með puttann á púlsinum.
Ikea er alltaf með puttann á púlsinum. mbl.is/Ikea
Sporöskjulaga ljós frá lækninum sjálfum - House Doctor.
Sporöskjulaga ljós frá lækninum sjálfum - House Doctor. Mbl.is/House Doctor
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert