Dýrasta hótel landsins leitar að matreiðslumanni

Deplar Farm.
Deplar Farm.

Lúxushótelið Deplar Farm leitar nú að matreiðslumanni í fullt starf en fullyrt er að miklir möguleikar séu í boði fyrir réttan einstakling.

Fyrir þá sem eru ekki með það á hreinu eru Deplar Farm hótel í eigu Eleven Experience og er sjálfsagt dýrasta og fínasta hótel landsins. Verð fyrir gistinóttina hleypur á hundruðum þúsunda þannig að hinn venjulegi Íslendingur skellir sér seint þangað yfir helgi.

Á hinn bóginn er hér um að ræða spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullt matreiðslufólk þar sem metnaðurinn sem einkennir hótelið nær að sjálfsögðu líka til eldhússins.

Í auglýsingunni sem staðurinn birti kemur meðal annars fram að:

Eleven Experience á Íslandi leitar nú að yfirmatreiðslumanni til að starfa á lúxus-sveitasetrinu Deplar Farm í Fljótum, Skagafirði. Á Deplum er lögð áhersla á að veita gestum fyrsta flokks matarupplifun. Íslensk hráefni og nýting á nærumhverfi eru megináherslur matseldar á Deplum.

Um er að ræða spennandi og krefjandi starf með mikla möguleika fyrir réttan aðila. Starfið er fullt starf og er fyrir norðan á Deplar Farm.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á rekstri eldhússins
  • Ábyrgð á öllu sem snýr að hráefni, innkaupum og móttöku, samningum og almennu birgðahaldi
  • Ábyrgð á starfsmannahaldi; stjórnun, ráða og þjálfa
  • Sérsníða matseðil
  • Geta skilað hágæðavinnu (þar á meðal matreiðslu og stjórnun) í kraftmiklu, hröðu vinnuumhverfi
  • Ganga úr skugga um að eldhúsið sé öruggt og hreint, tryggt að reglum heilbrigðisyfirvalda sé fylgt til hins ítrasta.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Sveinspróf og/eða meistarapróf
  • Þekking á íslensku hráefni og réttum
  • Góð enskukunnátta
  • Ökuskírteini
  • Mikil skipulagshæfileiki og sveigjanleiki í starfi
  • Frábær þjónustulund og samskiptahæfni
  • Frumkvæði, sköpunarkraftur og sjálfstæð vinnubrögð

Vinsamlegast sendið umsókn ásamt ferilskrá á hheidarsdottir@elevenexperience.com

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert