150 þúsund manns á biðlista eftir þessari flösku

Vatnsflöskurnar sem fólk heldur ekki vatni yfir.
Vatnsflöskurnar sem fólk heldur ekki vatni yfir. mbl.is/Stanley Quencher

Vinsælasta vatnsflaskan þessi dægrin er þessi hér, sem selst upp áður en hún ratar inn á lager. 

Hvert sem við förum, þá er vatnsflaskan oftast með - því ekki megum við líða vökvaskort yfir daginn. Vatnsflöskurnar frá Stanley Quencher virðast þó hafa meiri áhrif á fólk en aðrar sambærilegar, því þær seljast upp jafnóðum og þær detta á vörubrettin. Um 11 milljón manns hafa horft á video tengdu myllumerkinu #stanleyquencher á TikTok - og um 150 þúsund manns hafa skráð sig á biðlista eftir að fá sinn brúsa. 

Flöskurnar fást í nokkrum stærðum, sem og níu skemmtilegum litum. Þeir halda köldum drykkjum í ellefu tíma og heitum drykkjum í sjö tíma. Flöskurnar leka ekki og þær stærstu koma með handfangi svo auðvelt er að halda á flöskunni. Fyrir áhugasama, þá má skoða þær nánar HÉR

mbl.is/Stanley Quencher
mbl.is/Stanley Quencher
mbl.is/Stanley Quencher
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert