Krónan opnar einn umhverfisvænsta bar bæjarins 

Ljósmynd/Aðsend

Krónan hefur opnað þurrvörubar í verslun sinni í Skeifunni. Þurrvörubarinn er ný viðbót inn í umbúðalausar lausnir Krónunnar þar sem markmiðið er að styðja enn betur við vistvænni neysluhætti viðskiptavina. 

„Við byrjum með þurrvörubarinn í Skeifunni og erum spennt að sjá hvernig hann leggst í viðskiptavini okkar. Við sjáum í nágrannalöndum okkar að svona þjónustu hefur verið vel tekið, en Ísland á smá í land þar,“ segir Daði Guðjónsson, forstöðumaður markaðs- og umhverfismála Krónunnar.  

Fleiri þurrvörubarir verða opnaðir í desember í Krónunni á Granda og í nýrri verslun á Akureyri. „Þetta er verkefni sem við viljum vinna áfram og þróa með okkar viðskiptavinum. Umbúðalausu lausnirnar skipta Krónuna máli því þær snerta á öllum  þremur megin umhverfisþáttunum í rekstri okkar; draga úr matarsóun, spara orku og minnka umbúðanotkun,“ segir Daði.  

Bæði er hægt að koma með eigin ílát en einnig grípa pappírspoka til að fylla á ef ílátið gleymist heima. Kúskús, rauðar linsu- og nýrnabaunir, kjúklingabaunir, svartar baunir, tvær tegundir hýðishrísgrjóna og tvær af pasta verða á barnum til að byrja með.  

Krónan vinnur stöðugt að því að innleiða lausnir til að svara kalli viðskiptavina um umbúðalausan lífsstíl. Má þar nefna Hreppamjólk í Lindum sem fæst í endurnýtanlegum flöskum, sápubar Krónunnar á Granda þar sem fylla má á sápubrúsann, ásamt Krónukrönum í Vík og á Granda þar sem viðskiptavinir geta fyllt á vatnsflöskurnar sínar.  

Daði Guðjónsson, forstöðumaður markaðs- og umhverfismála Krónunnar.
Daði Guðjónsson, forstöðumaður markaðs- og umhverfismála Krónunnar. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert