81 árs Martha Stewart laumuskotin í „ungum manni“

Martha Stewart.
Martha Stewart. mbl.is/

Við höfum öll verið skotin í (hrifist af) einhverjum frægum - sem nær þó ekki lengra en að dást að viðkomandi úr fjarska. Meira segja Martha Stewart sagði frá því nú á dögunum að hún kiknar í hnjánum er hún sér Brad Pitt.

Eldhúsgyðjan var í þætti hjá Jimmy Fallon þar sem umræðan snérist upp í að hún vildi ólm hitta sjarmatröllið Brad Pitt einn daginn - hún fær stjörnur í augun við það eina að skoða af honum myndir. Hún sagði í viðtalinu að hún heillist mikið af þessum myndarlega unga manni sem heitir Brad Pitt en hafi þó aldrei hitt manninn - hún hreinlega bráðni við að sjá hann á mynd. Martha er að fylgja svokallaðri aðdáendasíðu Brad, þar sem leikarinn sjálfur er ekki á Instagram. 

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Martha talar um menn sem heilla hana, því er hún mætti sem gestur í þáttinn til Drew Barrimore - talaði hún um hversu sætur Pete Davidson væri, en hann er fyrrum Saturday Night Live stjarna. 

mbl.is/Michael Tran/AFP via Getty
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert