Heimagert granóla að hætti Jönu

Granóla sem smakkast eins og jólin með kanil, hnetum og …
Granóla sem smakkast eins og jólin með kanil, hnetum og trönuberjum. mbl.is/Jana

Að eiga gott granóla inni í skáp er eins og að eiga sælgæti út á ab-mjólkina á morgnana. Þetta granóla er úr smiðju Jönu sem gefur uppskriftinni fullt hús stiga.

Heimagert granóla að hætti Jönu

  • 1 dl hunang
  • 1/2 dl kókosolía
  • 3 msk. kakósmjör
  • 1 msk. vanilla
  • 1 tsk. salt
  • 2 tsk. kanilduft
  • 1/2 tsk. engiferduft

Þurrt

  • 6 dl haframjöl 
  • 2 dl pekanhnetur, gróft saxaðar
  • 2 dl sólblómafræ
  • 1 dl kókosmjöl
  • 1 dl graskersfræ

Aðferð:

  1. Hitið í potti við lágan hita – hunang, kókosolíu, kakósmjör, vanillu, salt og krydd. 
  2. Setjið öll þurrefnin í skál og hrærið svo vökvanum vel saman við. 
  3. Setjið inn í ofn á bökunarpappír eða beint á hreina bökunarplötu og ristið á 150 gráðum í 25-35 mínútur. Passið að hræra vel í granólanu nokkrum sinnum svo að það ristist jafnt. 
  4. Eftir að granólað er komið úr ofninum, blandið þá 1 dl af þurrkuðum trönuberjum og 1 dl af ristuðum kókosflögum saman við. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert