Flottasta kanína landsins snýr aftur

Það er orðinn árviss viðburður að fagna komu fegurstu súkkulaðikanínu landsins en það er að sjálfsögðu súkkulaðikanínan Mr. Carrots sem framleidd er er af Omnom. 

Fyrir nokkrum árum fékk Kjartan Gíslason, súkkulaðigerðarmaður og annars eigenda Omnom þá hugdettu að búa til páskaegg. 

Eggið yrði þó að vera í anda Omnom og markmiðið var að skapa listaverk úr súkkulaði þar sem súkkulaðið er í fyrsta sæti.

„Súkkulaðigerð er eins og ferðalag eða leiðangur og er súkkulaðikanínan Mr. Carrots afrakstur slíkrar vinnu en hún var mörg ár í undirbúningi,“ segir Kjartan brosandi. Kanínan tók um það bil tvö ár í undirbúningi. 

„Til að byrja með voru uppi hugmyndir um geometrískt egg en eftir fyrstu teikningar voru allir sammála um að það vantaði meiri karakter. Þá voru gerðar teikningar af lambi og litlum hænuungum en allt kom fyrir ekki, en svo kom það, kanína! Auðvitað gerum við kanínu,“ útskýrir Kjartan spenntur. 

„Þegar við hófum þessa vegferð vildum við setja allan fókusinn á súkkulaðið, ekkert nammi eða því um líkt. Það snýst allt nefnilega um Mr. Carrots. Þetta er súkkulaðiveisla,” segir hann stoltur. 

Súkkulaðikanína Omnom er handgerð og búin til úr verðlaunasúkkulaðinu Lakkrís + Sea Salt. Hún er einungis fáanleg í vefverslun Omnom sem og verslun þeirra út á Granda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert