Grillaður eftirréttur með banana og súkkulaðigóðgæti

Grillaður eftirréttur úr smiðju Lindu Ben sem er fullkominn í …
Grillaður eftirréttur úr smiðju Lindu Ben sem er fullkominn í útileguna. Bananar, súkkulaðigóðgæti, sykurpúðar og hafrakex. Ljósmynd/Lind Ben

Útilegueftirréttir eru eitthvað sem er ávallt gaman að gera, sérstaklega ef þeir eru gerðir á grillinu. Það er ákveðin stemning við að grilla og ilmurinn verður svo lokkandi. Linda Ben uppskriftahöfundur sem heldur úti uppskriftasíðunni Linda Ben er mikill sælkeri og elskar að setja saman eftirrétti. Það nýjasta úr smiðju hennar er þessi frumlegi réttur sem ber enska heitið Smore's nachos.

Það er klassískt að grilla banana og setja í þá alls konar gott súkkulaði, en það hafa kannski færri prófað að skera þá niður og setja í grillbakka með sykurpúðum og súkkulaði. Þetta Smore's nachos er einmitt þannig og það er óhemju gott,“ segir Linda.

„Maður byrjar á því að skera bananana niður og raða í bakkann. Einhverjum gæti þótt það freistandi að sleppa bönununum og fara beint í að raða namminu á bakkann, en ég mæli sterklega gegn því þar sem þeir eiginlega gera réttinn. Það er bara eitthvað við grillaða banana með súkkulaði. Ofan á bananana raðar maður sykurpúðum og súkkulaði sem maður grillar þar til hvort tveggja hefur bráðnað,“ segir Linda og bendir jafnframt á að það sé í góðu lagi að baka réttinn í ofni ef grill er ekki til staðar.

Grillað Smore's nachos

  • 2 bananar
  • 1 poki sykurpúðar (hægt að blanda saman ½ poka af stórum sykurpúðum og ½ af litlum)
  • 300 g Síríus-rjómasúkkulaði með trompbitum
  • 100 g Síríus-súkkulaðiperlur
  • Hafrakex 

Aðferð:

  1. Skerið bananana niður og dreifið þeim í botninn á grillbakka.
  2. Setjið sykurpúðana yfir bananana.
  3. Brjótið súkkulaðið niður og dreifið því á bakkann.
  4. Dreifið súkkulaðiperlunum yfir.
  5. Setjið bakkann á grillið og grillið þar til sykurpúðarnir eru orðnir mjúkir og súkkulaðið bráðnað, mér fannst best að stilla á meðal-lágan hita og loka grillinu.
  6. Það er einnig hægt að baka réttinn í ofni en þá stillir maður ofninn á 170°C, undir- og yfirhita, og bakar þar til sykurpúðarnir brúnast örlítið.
  7. Berið fram með hafrakexi sem þið notið eins og snakkflögur í nachos.
Það fylgir nostalgía þessum grillaða eftirrétti sem ber enska heitið …
Það fylgir nostalgía þessum grillaða eftirrétti sem ber enska heitið Smore's nachos. Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert