Humar- og chorizopitsa sem rífur í

Ómótstæðilega girnileg pitsa sem rífur í og gleður alla matgæðinga.
Ómótstæðilega girnileg pitsa sem rífur í og gleður alla matgæðinga. Ljósmynd/Snorri Guðmundsson

Það er föstudagur og þá er pitsakvöld á mörgum heimilum. Ef þú ert í stuði fyrir örlítið öðruvísi pitsu þá er þessi hér, sem kemur úr smiðju Snorra Guðmundsson matgæðings, klárlega málið. 

Humarinn og reykt chorizo-bragðið parast svakalega vel á móti sætunni í ananasnum, passið bara að velja góðan ananas, og hitanum frá sterka majónesinu og chiliflögunum. 

Þessi rífur svo sannarlega í og pitsakvöldið verður alveg frábært. Hægt er að fylgjast með því sem Snorri er að elda á heimasíðu hans Matur og myndir.

Sterk humar- og chorizopitsa

  • 1 pitsabotn að eigin vali (400 g) eða uppáhalds pitsadeigs-uppskriftin hans Snorra hér
  • 100 g skelflettur humar
  • 60 sterkt chorizo
  • 150 g mozzarellaostur
  • 1 hvítlauksrif
  • 150 ml pitsasósa að eigin vali, Snorra finnst Mutti best
  • 6 g basilíka eða meira, fer eftir smekk
  • 50 g ananasbitar ef vill
  • 50 g japanskt majónes
  • 10 ml srirachasósa
  • 5 ml chiliflögur
  • Smjör eftir smekk
  • Salt eftir smekk

Aðferð:

  1. Takið pitsabotninn úr kæli að minnsta kosti 1 klukkustund áður en elda á pitsuna.
  2. Setjið pitsastein í neðstu grind í ofni og stillið á hæsta hita, 300°C helst.
  3. Látið steininn hitna á meðan unnið er í öðru.
  4. Hrærið srirachasósu saman við japanskt majónes.
  5. Þerrið humarinn og hreinsið dökku röndina sem liggur endilangt yfir humarinn úr ef þarf.
  6. Hitið smá olíu á pönnu við háan hita.
  7. Bætið humarhölum út á pönnuna, pressið hvítlauk og setjið á pönnuna ásamt smjörklípu. Steikið humarinn í um 2 mínútur eða þar til hann er fulleldaður.
  8. Saltið smá ef vill.
  9. Notið hendurnar til þess að fletja pitsabotninn út í um 15“ hring og leggið svo á bökunarpappír.
  10. Best er að vinna út frá miðju deigsins í átt að kantinum og reyna að hlífa um 1,5 cm af kantinum við sem mestu hnjaski, en þannig er gasinu ýtt út í kantinn sem verður til þess að hann lyftist mun betur.
  11. Skerið chorizo í fernt.
  12. Smyrjið pitsasósu yfir botninn og dreifið mozzarellaosti svo yfir.
  13. Raðið humri, chorizo, ananas og chiliflögum á pitsuna.
  14. Færið pitsuna á pitsasteininn og bakið þar til pitsan er fallega gyllt og ljúffeng.
  15. Saxið basilíku og stráið yfir pitsuna ásamt sterku majónesi þegar hún kemur úr ofninum.
  16. Njótið við kertaljós og huggulegheit.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert