Hefur þú smakkað hægeldaðan nautahnakka í kóksósu?

Hægeldaður nautahnakki borinn fram með heimalagaðri kartöflumús.
Hægeldaður nautahnakki borinn fram með heimalagaðri kartöflumús. Ljósmynd/Andrea Gunnarsdóttir

Hægeldað kjöt er sælkeramatur sem er einstaklega gott að njóta á þessum árstíma, sérstaklega hægeldaðir nauta- og svínahnakkar. Það er skemmtilegur sjarmi yfir mat sem tekur stutta stund að útbúa og svo sér hann bara um sig sjálfur í ofninum yfir daginn, auk þess sem húsið fyllist af góðri matarlykt. Þessi uppskrift er einmitt þannig réttur og kemur úr smiðju Andreu Gunnarsdóttur sælkera sem heldur úti uppskriftasíðunni Andrea Gunnars. Það tekur enga stund að búa til réttinn og koma honum í bakarofninn og húsið lyktar dásamlega allan daginn. Þegar líður að matartíma þarf svo ekki að gera annað en að leggja á borð og útbúa kartöflumús.

Þetta er ekta helgarmatur eða bara á góðum degi í vetrarkuldanum. Þá er tilvalið að kveikja á kertum og jafnvel fá sér smá rautt í glasi til að njóta með matnum. Uppskriftin er drjúg og það er upplagt að setja afganga af kjötinu í vefjur eða hamborgarabrauð með því meðlæti sem hugurinn girnist.

Hægeldaður nautahnakki í kóksósu

  • 1,2 kg nautahnakki, skorinn í 3 cm sneiðar
  • Bezt á nautið, kryddið eftir smekk
  • 2 pk. sveppasúpa frá Toro
  • 1 dl nautasoð (eða vatn)
  • 3,5 dl rjómi
  • 3-4 dl kók (ekki sykurlaust)
  • 1 nautateningur
  • 2 tsk. Worcestershire-sósa
  • Smá hvítur pipar
  • Smjör til steikingar

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 130° hita.
  2. Nuddið kryddinu Bezt á nautið á nautahnakksneiðarnar og steikið þær upp úr vel af smjöri á háum hita á millistórri pönnu.
  3. Raðið nautahnakkssneiðunum í botninn á ofnpotti eða notið eldfast mót ef þið eigið ekki ofnpott, setjið þá álpappír yfir formið áður en það fer inn í ofn.
  4. Setjið nautatening og nautasoð á pönnuna og látið suðuna koma upp.
  5. Setjið næst pakkana tvo af sveppasúpu á pönnuna og hrærið öllu vel saman.
  6. Bætið rjómanum á pönnuna, smátt og smátt og hrærið vel í súpunni á meðan. Hún á að vera mjög þykk.
  7. Setjið næst kók, Worcestershire-sósu og hvítan pipar á pönnuna og látið allt sjóða saman þangað til súpan er þykk en kekkjalaus.
  8. Hellið sósunni yfir nautahnakkssneiðarnar, setjið lok á ofnpottinn og setjið hann inn í ofn.
  9. Eldið í 7-8 klukkustundir.
  10. Þegar kjötið er tilbúið er það tætt í sundur með gaffli og hrært vel saman við sósuna.
  11. Berið fram með heimalagaðri kartöflumús.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert