Svona saltpæklar þú kjúkling

Ísak Aron Jóhannsson landsliðskokkur mælir með að kjúklingur sé saltpæklaður …
Ísak Aron Jóhannsson landsliðskokkur mælir með að kjúklingur sé saltpæklaður fyrir eldun. Þá verði hann meiri djúsí. Samsett mynd

Ísak Aron Jó­hanns­son, fyr­irliði ís­lenska kokka­landsliðsins og eig­andi veisluþjón­ust­unn­ar ZAK, gef­ur les­end­um mat­ar­vefs­ins góð hús­ráð alla föstu­daga sem nýt­ast vel við mat­ar­gerðina, bakst­ur­inn og þegar grilla skal. Að þessu sinni kennir Ísak okkur að saltpækla kjúkling og segir að það sé miklu auðveldara en margir halda. Nú er bara að prófa.

Góð leið til að gera djúsí kjúkling

„Góð leið til að enda með djúsí kjúkling er að saltpækla hann fyrir fram, þetta er auðveldlega gert með því að blanda saman 2 lítrum af vatni og 100 grömm af salti og er því hrært saman þar til saltið hefur leyst upp. Síðan er vert að bæta við jurtum og kryddum sem þér líkar við til dæmis fersku timiani, sítrónusneiðum, kanilstöngum, chilli og/eða engifer. Leyfa síðan kjúklingnum hvort sem það er heill kjúklingur, bringa eða læri að liggja í pæklinum í 20-50 mínútur, fer eftir því hversu stór vöðvinn er. Passa þarf upp á að vökvinn sé kaldur. Kjúklingurinn er næst tekinn úr vökvanum og þerraður, eldaður síðan á þann máta sem þig langar til og ég get sagt það fullviss að hann verður safaríkari fyrir vikið,“ segir Ísak að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert