Leikmaður Liverpool frá keppni næstu mánuðina

Sofie Lundgaard verður frá keppni næstu mánuðina.
Sofie Lundgaard verður frá keppni næstu mánuðina. Ljósmynd/@LiverpoolFCW

Daninn ungi Sofie Lungaard verður frá keppni næstu mánuðina vegna hnémeiðsla sem hún varð fyrir á æfingu enska liðsins Liverpool.

Er nú komið í ljós að krossbandið er slitið og verður miðjukonan, sem er 21 árs, frá keppni út árið hið minnsta.

Lindgaard kom til Liverpool í janúar á síðasta ári og hefur leikið 17 sinnum með enska liðinu, en hún kom til þess frá Fortuna Hjørring í heimalandinu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert