Liverpool reiðubúið í stríð

Xabi Alonso er eftirsóttur maður.
Xabi Alonso er eftirsóttur maður. AFP/Ina Fassbender

Ljóst er að Liverpool muni fá mikla samkeppni frá Bayern München um knattspyrnustjórann Xabi Alonso. 

Bæði lið leita nú að næsta knattspyrnustjóra en Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, og Thomas Tuchel, stjóri Bayern, munu yfirgefa félögin að yfirstandandi tímabili loknu. 

Xabi Alonso er langefstur á óskalista beggja félaga en hann hefur fagnað frábærum árangri með Bayer Leverkusen á yfirstandandi tímabili. Liðið er í toppsæti þýsku 1. deildarinnar með tíu stiga forskot á Bayern. 

Talið er líklegra að Alonso fari til Bayern eins og er en samkvæmt enskum miðlum mun Liverpool gera allt til að fá Spánverjann til að taka við taumunum hjá félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert