Aprílspá Siggu Kling er lent

Aprílspá Siggu Kling er mætt. Hér klæðist hún grænni kápu …
Aprílspá Siggu Kling er mætt. Hér klæðist hún grænni kápu frá Andreu Magnúsdóttur fatahönnuði í Andreu. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir

Aprílmánuður er genginn í garð og Sigga Kling, spákonan mikla, er búin að rýna í stjörnurnar og segir að Fiskurinn eigi eftir að upplifa eitthvað nýtt á meðan Hrúturinn lýkur 14 ára tímabili sem boðar nýja tíma. 

Fagnaðu áföngum

Hrúturinn er frá 21. mars til 19. apríl.

Elsku Hrúturinn minn, þú ert að fara inn í eitt merkilegasta tímabil sem þú hefur upplifað á síðustu árum. Þú þarft að læra að lesa í merkin í kringum þig eða skilaboðin sem er verið að senda þér.

Þú tekur ákvarðanir sem koma meira að segja þér á óvart og þetta er upphaf að tímabili sem spannar 14 ár. En kannski hugsar maður nú ekki svo langt fram í tímann, en núna byrjar svo margt að banka á dyrnar hjá þér. 4 apríl er ótrúlega merkilegur dagur fyrir þig og þá áttu að gera sem mest og hrinda hlutum af stað.

Lesa meira

Gamlar hugsanir og erfiðleikar strokast út

Nautið er frá 20. apríl til 20. maí.

Elsku Nautið mitt, það verður mikill hristingur í kringum þig í apríl mánuði. Allur þessi hristingur verður þér til góðs, þó að stundum sértu ekki viss um hvort að þú hafir fulla stjórn.

Um miðjan aprílmánuð er hugur þinn á ofsa hraða, svo skrifaðu niður hvaða hugmyndir þú vaknar með, eða hvaða hugmyndir þú færð þegar þú ert að sofna, því á milli svefns og vöku ertu beintengd við æðri mátt.

Næmni þín og spádómshæfileikar eflast og margfaldast, þú gerir þér meira grein fyrir því að þú ert svo miklu miklu meira og svo miklu sterkari en þér hefur dottið í hug.

Gamlar hugsanir og erfiðleikar úr fortíðinni strokast út, og drungi sem hefur sest að í hjarta þínu hverfur. Skipulag, sem er frekar þreytandi orð, er það sem skiptir svo miklu máli fyrir næstu 90 daga. Þetta þarf ekki að vera eitthvað mikið, heldur bara kannski „þetta á að gera þarna, þetta á að gerast hérna“, svo skrifaðu niður hugmyndirnar og ekki láta neinn draga úr þér væntingarnar.

Lesa meira

Leyfðu letinni að ná tökum á þér, það er sexý

Tvíburinn er frá 21. maí til 20. júní.

Elsku Tvíburarnir mínir, í kringum sólmyrkvann merkilega sem er þann 8 apríl gefur þér það að hugur þinn, andi og allt saman sigrast á allri hræðslu.

Ef að einhverjir óvinir, að þér finnst, hafi verið í kringum þig eða að tala illa um eða við þig, þá víkur allt burt frá vegi þínum og þú hugsar afhverju var ég að láta þetta ergja mig svona mikið því það tók því ekki. Þetta er mikið stærra en að ég sé að tala um einhverja eina manneskju eða einhvern einn atburð, þú hendir út þeim vondu venjum sem við öll höfum að einhverju leyti.

En þarna færðu gleði sjálfsagans og það ekkert eins fallegt og tvíburi með sjálfstraust, sjálfsaga og bros. Það er viss undirbúningur í gangi, þú gætir byrjað á því að sanka að þér hlutum eða taka nær hjarta þínu fólk sem þér datt ekki í hug áður að væri mikilvægt, og þegar á líður þá veistu afhverju.

Lesa meira

Losaðu þig við pirringinn

Krabbinn er frá 21. júní til 22. júlí.

Elsku krabbinn minn, þú ert svo sannarlega búin að breiða út faðminn gagnvart lífinu. Þú tekur á móti hinu jákvæða og hinu neikvæða með miklu betra jafnvægi.

Þú ert með skýra stefnu að einhverju leyti og fólk þráir að vera inni í þeirri orku sem þú ert að gefa frá þér. Þú finnur nýja leið og færð betri útkomu og jákvæðari svör. Apríl er að gefa þér ómælt sjálfstraust og sterka hugarorku. Þú gætir spáð í það að vilja fara á námskeið eða í skóla eða að kenna einhverjum það sem þú kannt, þú værir allan daginn góður kennari því hefur frábæra skipulags hæfileika og þú gefur ekki neitt eftir.

Þú dettur oft í þá hugsun að þeir sem eru næstir þér skilji þig alls ekki og rífa þig frekar niður heldur en að byggja þig upp. Taktu vel eftir þessu vertu meðvitaður um þetta því þau eiga eftir að finna að þú ert komin til að sjá og sigra.

En góður slatti af þolinmæði á lífssalatið er mjög gott í kringum sólmyrkvann þann 8 apríl og dagana í kring og líka í kringum spennuna sem er í kringum síðustu dagana í apríl.

Lesa meira

Þú átt eftir að koma öllum á óvart

Ljónið er frá 23. júlí til 22. ágúst.

Elsku ljónið mitt, það er ekki hægt að segja að það sé dauður tími í kringum þig. Enda ertu ekkert sérlega fyrir tímabil þar sem ekkert er að gerast. Taktu ekki of fljótfærar  ákvarðanir, ekki styggja þína nánustu þó þig langi til og hafir tilefni til þess. Láttu þessa blessuðu fljótfærni sem prýðir þig svo gjarnan heyra sögunni til. Ritaðu ekkert niður eða sendu engum skilaboð sem eiga að vera leyndarmál og þú myndir ekki vilja hafa fyrir allra sjónum.

Fyrir utan þessa viðvörun er eins og þú sért á breiðu skautasvelli á listdansskautum og þó að þú hafir aldrei lært á listdansskauta þá er eins og þú sért heimsmeistari í þessari grein. Svo taktu áskorun þó þú haldir að þú getir ekki neitt í því sem er verið að ýta þér út í að taka þátt.

Þú átt eftir að koma öllum og ekki síst sjálfum þér á óvart því þú ert töluvert miklu miklu meiri hæfileikum gæddum en þú getur ímyndað þér. Þessi töfrandi og tryllti mánuður sem mætir þér er að framkalla það besta sem að þú getur sett frá þér. Stattu bein eða beinn í baki og láttu rigna upp í nefið á þér, þó að þér finnist að þú sért að ganga í gegnum helvíti láttu þá fólk bara halda að þú eigir staðinn.

Allir sem eru fæddir í þessu alla sérstakasta merki dýrahringsins eru listrænir, nýttu þér það og með útgeislun á við sólina. Þú ert mjög tengd/ur orku jarðarinnar, sjónum og verðurfari. Það er eins að þú finnir það á lyktinni að það fari að rigna og að þig dreymi fyrir því ef eitthvað annað gerist.

Lesa meira

Þú tekur eftir hamingjunni núna

Meyjan er frá 23. ágúst til 22. september.

Elsku meyjan mín, það er búið að vera mikið að gerast að undanförnu. Þú ert búin að fara í gegnum hin ýmsu uppgjör og ert fegin því. Samt er afkomuóttinn að hvísla einhverju að þér en það er algjör óþarfi fyrir þig að hlusta á það því þú átt eftir að veðja á rétta hluti.

Það er eins og kallað er dómínó áhrifin, því það virðist einhver heppni og lukka leika við þig. En þú segir kannski við sjálfa þig úps og ég sem vinn aldrei í happadrætti eða ég vinn aldrei svona, en aftur og aftur verður það áberandi hversu heppin þú ert.

Þér á eftir að finnast þessi tími mjög spennandi en samt svolítið krefjandi. Þú þarft svo sannarlega að læra að taka ekki annarra manna erfiðleika inn í hjartað þitt, því að fólk treystir þér fyrir sínum innstu málum og það gengur ýmislegt á í fjölskyldunni.

Góð aðferð er að þegar að þú getur ekki gert neitt í málunum þá þarftu að segja hátt NEI við hugsuninni og hreyfa þig til inn í aðra, og endurtaka þetta eftir þörfum.

Lesa meira

Tími til að rísa upp úr öskustónni

Vogin er frá 23. september til 22. október.

Elsku vogin mín, það er alveg sama þó þú sjáir einhverjar rústir í kringum þig, því að þetta er samt tíminn til að rísa upp úr öskustónni. Það er búið lama þig að einhverju leyti, einhverskonar leyndarmál eða hlutir sem voru ekki alveg sannleikanum samkvæmir.

Þú getur verið svo ófeimin að láta hlutina flakka og að þurfa ekki að endurskoða orð þín, en settu hins vegar mildi í málróminn þegar þú þarft að gjósa. Það er staðreynd að þann 20 apríl þá ferð þú inn í tveggja ára hring eða tveggja ára tímabil, Þar sem þú setur sjálf að miklu leiti allar leikreglurnar. Ef það er ekki búið að taka eftir þér sem karakter og mannesku nú þegar, þá mun eftir þann 20 apríl aðdáendahópurinn þinn stækka og margfaldast, hvort sem þú vilt það eða ekki, því þú hefur gott af því að gleðjast.

Það er þegar byrjað það tímabil þar sem þú einfaldar hlutina, minnkar við þig, gefur, selur og hreinsar til og  það er táknrænt  um að þú sért þannig að bjóða nýtt velkomið.

Lesa meira

Nú verður virkilega gaman

Sporðdrekinn er frá 23. október til 21. nóvember.

Elsku sporðdrekinn minn, nú verður virkilega gaman. Þú finnur að þú getur haft þessa trú á þér sem þú bjóst ekki við. Þú átt að skoða áhugamálin í kringum þig og búa til úr því einhverskonar atvinnu, því þar er velmegunina að finna.

Þegar mánuðurinn er að taka enda þá ertu undir regnboganum, sérstaklega í kringum 23 apríl og dögunum þar í kring, því að þar birtist hið merkilega tungl sporðdrekans. Nýttu þér þetta afl til leysa hnúta og drífa þig í fjörið, þetta er tengt áhuga þínum á einhverju öðru en þú hefur atvinnu af.

Innst inni hefur þú unun af því að takast á við vafasamar aðstæður og sama hvað öllum öðrum finnst þá getur þú snúið þeim þér í hag. Þú ert stórbrotinn í samskiptatækni sem er miklu kraftmeira og gefur þér meira heldur en einhver gráða úr Harvard eða sambærilegu.

Þér finnst oft vera of lítill tími til að gera þetta eða gera hitt og ef þér leiðist í vinnunni og finnst það tilgangslaust strit, skoðaðu þá að finna jafnvægi og gera vinnuna þína skemmtilegri með því að leggja eitthvað meira fram sjálfur.

Lesa meira

Leyfðu þér að vaða út í óvissuna

Bogmaðurinn er frá 22. nóvember til 21. desember.

Elsku bogmaðurinn minn, þú ert að fara inn í 20 mánaða tímabil sem gefur þér meiri færni, sterkari leiðtogakraft og þú munt sjá að þér hefur verið með sterkari spil á hendi til þess að vinna þennan póker sem lífið er að senda þér.

Það eina sem þú munt ekki þola á því tímabili sem þú ert að fara inn í er ef þér finnst þú vera fastur og einhver sé að stjórna þér og því sem þú ert að gera, þá mun þér ekkert líða neitt sérstaklega vel með það.

Þú þarft í þessu upphafi að slíta þau bönd sem halda þér niðri og leyfa þér að vaða út í óvissuna og mæta allri hræðslu með ákveðni. Það mikilvægasta núna er að styrkja heimilið og gera allt eins fallegt og þú getur því að í þér býr ævintýragjörn persóna sem þarf að gefa sér frelsi.

Þetta þýðir alls ekki að þú eigir að skilja við eiginkonuna eða eiginmanninn, nema að það sé eitthvað mikið mikið að, heldur skaltu heilla þá sem þú þarft að hafa með þér liði upp úr skónum, og ef einhver hefur hæfileikana til þess, þá ert það þú.

Lesa meira

Þú veist ekki hversu sterk þú ert

Steingeitin er frá 22. desember til 19. janúar.
Elsku steingeitin mín, í öllum þessum hugleiðingum sem hafa lagst á þig núna undanfarið finnur þú fyrir að þú sért að fara inn á beina eða hreina braut. Það er sérstakur lækningamáttur yfir þessu tímabili og þú átt líka eftir að skynja þinn eigin heilunarmátt betur. Þú ert á ógnarhraða að kynna þér fólk í kringum þig, hvaða möguleika þú hefur í næstu skrefum og hvers lags gleði þú getur innheimt. Því að kraftur og blessun er yfir fjölskyldu þinni og þeim ákvörðunum sem þarf að taka í kringum þig og hjá þér.

Í eðli þínu ertu samningamaður, sálfræðingur og klettur bæði þinn eigin og annarra. Og í öllu þessu ölduróti sem þú hefur siglt í síðastliðin þrjú ár eða 1000 daga, þá kemur þú hraustari, hressari og bjartsýnni út.

Það sem einkennir þig er heiðarleiki og þú átt erfiðara með að setja þig í spor þeirra sem rjúfa heiðarleikann gagnvart þér. Það eru daprar persónur eða persóna sem vill vináttu þína og þegar þú lest þetta og þér dettur einhver sérstakur í hug,því þá er það svarið.

Lesa meira

Teldu upp á 10 áður en þú segir nei

Vatnsberinn er frá 20. janúar til 18. febrúar.
Elsku vatnsberinn minn, þó að þú sért búinn að vera þungt hugsi og ekki alveg sáttur við allar útkomur, þá þarftu ekki að láta þér leiðast því að þú ert að fara inn í einn klikkaðasta mánuð ársins, en það tengir nú reyndar öll stjörnumerkin.

Þú ert svo sniðugur í að afla þér tekna og að hafa fjármálin þín á hreinu, og það er alveg sama hvað gengur á þá laðast peningar að þér úr öllum áttum. Og það er allt gott og blessað, en í ástarmálum geta orðið töluverðir hnökrar.  Og ef  lítur aftur í líflínuna þína þá hefur þú ekki verið svo heppinn í þeirri deildinni. Að mörgu leyti getur svarið verið það að þú ert svo sjálfstæður, passasamur og drífandi að þú þarft í raun kannski ekki einhvern til að bakka þig upp.

Og ef þú ert að leita að hinni einu sönnu ást eða að það er einhver ástarvitleysa í gangi með þeirri persónu sem þú ert með, þá er gott fyrir þig að setja það bara upp í excel; hvað í raun og veru á að prýða þá manneskju sem er svo heppin að fá að deila með þér lífinu.

Lesa meira

Þegar þú vaknar er þér boðið upp á nýtt líf

Fiskurinn er frá 19. febrúar til 20. mars.
Elsku fiskurinn minn, þvílíkt litrík birta, ofurkraftur og þessi endalausa seigla sem þú hefur kemur þér í mark, því þú stoppar ekki þó að einhver drullupollur sé fyrir framan þig, því það má heita að þú sért hættur að taka eftir því.

Aðalbreytingarnar á þínum högum á þessu merkilega tímabili er að þú elskar sjálfan þig betur og meira, setur sjálfan þig í fyrsta sæti eða að minnsta kosti framarlega. Þú verðleggur þig hærra hvort sem það er vinna eða önnur verkefni í lífinu. Og það er einmitt það sem við þurfum að skoða vel hversu mikils virði við erum, því við erum bara jafn mikils virði og við höldum sjálf, svo hækkaðu taxtann þinn.

Það kemur frekar oft fyrir að þú hafir áhyggjur af peningum og þú hafir þá persónu til að bera að bjarga alltaf öllu. Það er líka vegna þess að þú átt góðar innistæður hjá mörgu fólki sem vill gera allt fyrir þig.

Lesa meira

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál