Íslandsmeistari í megrun

María Krista Hreiðarsdóttir.
María Krista Hreiðarsdóttir.

María Krista er 47 ára grafískur hönnuður, þriggja barna móðir, amma og matgæðingur. Hún og eiginmaður hennar reka hönnunarfyrirtækið Krista Design og framleiða þau íslenskar gjafavörur. Hún skrifar um reynslu sína í heilsublaði Nettó:


Ég kalla mig oft Íslandsmeistara í megrun en eftir að ég kynntist lágkolvetnamataræðinu og ketó þá hef ég fundið mína hillu og aldrei liðið eins vel. Ég elska að elda og baka og fyrir mér er það áskorun að útbúa ljúffengan mat og kökur án glútens og sykurs. Ég hef gefið út uppskriftabók og fjöldann allan af uppskriftaspjöldum og á blogginu mínu www.mariakrista.com er ég mjög iðin við að deila góðum uppskriftum og ráðum. Til að hafa fullan aðgang að uppskriftasafninu mínu er hægt að gerast meðlimur í vinaklúbbnum en þeir sem þar eru fá einnig aðgang að fræðslugreinum, matseðlum, uppskriftaspjöldum á pdf-formi og ýmsum skemmtilegum tilboðum.

Ketó-kaffikaramellufrappi Maríu Kristu

Þessi kaffikaramellufrappi er ótrúlega bragðgóður og ferskur, stútfullur af góðri fitu,
örfáum kolvetnum og koffíni.
Mæli með að henda í svona og kippa með í bílinn. Fullt af góðri orku og svo auðvitað geggjað góður drykkur hvenær sem er.

Ketó-kaffikaramellufrappi

100 g kaffi, kælt  
130 g möndlumjólk, ósæt Isola
100 g ísmolar  
20 g Sweet like sugar Good Good (fínmöluð)
9 g MCT powder salted caramel  
4 dropar vanillustevía, French vanilla NOW

Á toppinn

þeyttur rjómi, laktósafrír
sykurlaust síróp Good Good

SNÚÐAR

80 g fituskert möndlumjöl eða 120 g hefðbundið möndlumjöl
2 og 1/2 msk HUSK powder-duft í dunkum eða 5 msk gróft Husk NOW
10 g Vital Protein-kollagenduft
2 egg
1 tsk vanilludropar eða kardimommudropar
2 msk Sweet like sugar
1 kúfuð tsk vínsteinslyftiduft
70 g vatn
100 g rjómaostur

FYLLING

40 g Sweet like sugar
1 msk kanill
1 msk valmúafræ
3-4 msk möndlusmjör frá MONKI

AÐFERÐ

Þeytið deigið vel saman og látið standa í 15-20 mín lágmark.
Berið vel af olíu á sílikonmottu eða smjörpappír og leggið deigið ofan á. Fletjið varlega út með annarri smurðri sílikonmottu eða pappír með olíu, passið að það sé vel af olíu undir.
Dreifið fyllingunni á og rúllið upp með mottunni. Mér fannst gott að stinga deiginu upprúlluðu í frysti í 30 mín – 1 klst.
Skerið niður í snúðastærð. Bakið í 15-20 mín á 180° með blæstri.
Látið kólna aðeins. Setjið smá súkkulaðismyrju frá Good Good á hvern snúð.

AÐFERÐ FYLLING

Blandið sætu, kanil og valmúafræjum saman.
Smyrjið deigið með möndlusmjöri (eða hefðbundnu smjöri).
Stráið Sukrin gold og kanilblöndunni yfir og rúllið síðan upp snúðunum. Gott að nota sílikonmottu til að hjálpa til við upprúllið.

Heilsan skiptir mig höfuðmáli og ég skora á ykkur að taka út sykur, glúten og unnin kolvetni úr fæðunni. Ég skora á þig að prófa, lífið er svo miklu léttara án þess. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál