Vala Valtýsdóttir lögmaður á Lögfræðistofu Reykjavíkur svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hún spurningu frá manneskju sem veltir fyrir sér hvernig séreign hjóna sem eiga ekki börn saman skiptist.
Góðan dag
Um er að ræða hjón sem eiga eingöngu börn úr fyrri hjónaböndum. Þau eru búin að gera erfðaskrá um að það sem lifir lengur situr í óskiptu búi. Nú erfir maki foreldri og hefur foreldri í erfðaskrá sagt að eigi að vera séreign. Hvernig fer með þá séreign ef til dæmis maki borgar fyrir rekstur, ferðir erlendis og fleira af þessum arfi. Hvernig skiptist búið þegar bæði eru dáin? Fá börn hins makans þessa séreign?
Ef skipti á dánarbúi fer fram eftir lát beggja hjóna, þá fellur niður lögmæltur erfðaréttur hins langlífara eftir hið skammlífara. Ef séreigninni er ekki skipt sérstaklega þegar sá sem lifir lengur sest í óskipt bú þá hefur hann frjáls yfirráð yfir henni og að lokum einmitt erfist hún beint til barna þess sem átti séreignina þar sem erfðarétturinn fellur niður milli hjónanna eftir andlát beggja.
Þetta þýðir hvað varðar séreignir að skipta á þeim strax þegar sest er í óskipta búið.
Kveðja,
Vala Valtýsdóttir lögmaður.
Þú getur sent lögmönnum á Lögfræðistofu Reykjavíkur spurningu HÉR.