„Það er aldrei rétti tíminn til að fara í eitthvert sorgarferli“

Haraldur Þorleifsson er Manneskja ársins að mati lesenda Smartlands. Haraldur er 45 ára hönnuður og stofnandi stafræna hönnunarfyrirtækisins Ueno. Eftir að hann seldi fyrirtæki sitt til Twitter greindi hann frá því að hann myndi borga alla skatta á Íslandi. Hann vildi verða skattakóngur en náði ekki fyrsta sætinu, en varð númer tvö í ár. Allt þetta ár hefur hann stutt við þá sem minna mega sín ásamt því að rampa upp Ísland og bæta þannig aðgengi fyrir fatlaða. Aðgengi í Reykjavík er þó langt frá því að vera í lagi því fólk eins og Haraldur er fast heima hjá sér þegar snjóar eins og gerst hefur síðustu vikur. 

Það var Þorláksmessa þegar mig bar að garði heima hjá Haraldi. Fjölskyldan var í óðaönn að undirbúa jólin á sínu fallega heimili í miðbæ Reykjavíkur. Þar býr Haraldur ásamt eiginkonu sinni Margréti Eddudóttur myndlistarmanni og börnunum tveimur sem eru fimm og tíu ára. Þegar við setjumst niður og byrjum að spjalla spyr ég hann hvernig honum finnist að vera Manneskja ársins. 

„Mér líður mjög vel með það. Þetta er svolítið skrýtið. Ég er að venjast þessu,“ segir Haraldur. 

Aðspurður hvernig árið hafi verið hjá honum segir hann að margt hafi verið í gangi. 

„Það er búið að vera mjög mikið að gerast hjá mér. Í vinnunni hefur verið alls konar drama en ég er að vinna hjá Twitter. Það er búið að vera mjög opinbert drama. Síðan höfum við verið í alls konar framkvæmdum hérna heima og svo höfum við verið að opna kaffihús og verið í framkvæmdum tengdum því. Þetta er búið að vera viðburðaríkt og gott ár,“ segir hann og á þá við kaffihúsið Önnu Jónu sem hann ætlar að opna í byrjun árs 2023. Kaffihúsið heitir í höfuðið á móður hans, Önnu Jónu Jónsdóttur, sem lést í bílslysi 1988. Þá var Haraldur 11 ára. 

Þegar hann er spurður um hápunkt ársins segir hann að það hafi verið magnað að spila á Airwaves. 

„Ég var búinn að hugsa um það mjög lengi. Það var mjög skrýtið því ég hef ekki spilað sjálfur á sviði í 20 ár. Það var alveg frábært,“ segir Haraldur sem semur tónlist undir listamannsnafninu Önnu Jónu Son. 

Talið berst að fötlun Haraldar sem er með vöðvarýrnunarsjúkdóm. 

„Ég var greindur þegar ég var svo ungur. Ég var bara tveggja ára. Þannig að ég hef einhvern veginn aldrei verið meðvitaður um að ég væri ekki með sjúkdóm. Það er kannski öðruvísi áfall að fá aldrei áfallið. Það er aldrei rétti tíminn til að fara í eitthvert sorgarferli. Oft hjá fólki sem lendir í slysi eða eitthvað þannig þá fer sorgarferli strax í gang. Þegar fólk fæðist með eitthvað svona eða er í þessum aðstæðum frá byrjun fer það aldrei í gegnum sama ferlið,“ segir Haraldur og segist vera í afneitun með sinn sjúkdóm.

Er ekki bara gott að vera í afneitun?

„Ég ætla nú ekki að fara að mæla með því að fara í afneitun. Það hefur gert ýmislegt fyrir mig sem ég hefði annars ekki gert ef ég væri að hugsa meira um sjúkdóminn,“ segir hann. 

Eins og hvað?

„Bara. Ég flutti til New York þegar ég var 26 ára. Hef ferðast um allan heiminn. Það fer rosalega lítill tími hjá mér í að hugsa um að ég sé með þennan sjúkdóm,“ segir hann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál