Sara og Chris Miller saman og ekkert bólar á skilnaði

Chris Miller og Sara Piana fögnuðu afmæli Miller saman um …
Chris Miller og Sara Piana fögnuðu afmæli Miller saman um helgina. Skjáskot/Instagram

Vöðvatröllið Chris Miller fagnaði afmæli sínu um helgina með eiginkonu sinni, íslensku athafnakonunni Söru Piana. Í haust greindi Sara frá því að þau Miller væru farin hvort í sína áttina. 

„Ég sótti um skilnað og er það í ferli. Þetta var ekki að ganga upp, mikið af erfiðleik­um því miður,“ sagði Sara í sam­tali við DV í haust. Sara sagði meðal annars frá því að aðeins annar aðilinn í hjónabandinu hefði lagt sig fram í sambandinu auk þess sem Miller vildi ekki búa á Íslandi. 

Nú virðist hins vegar vera komið annað hljóð í strokkinn. Sara og Miller voru saman á Íslandi um áramótin auk þess sem þau fóru blíðum orðum um hvort annað í tilefni afmælis Milllers. „Til hamingju með afmælið ótrúlegi eiginmaður minn,“ skrifaði Sara á Instagram og sagði að afmælisdagur hans hafi verið fullur af ást og hlátri. Miller birti sömu mynd og Sara og þakkaði íslensku fjölskyldunni og eiginkonu sinni fyrir góðan dag. 

Sara opnaði sig um samband sitt og Miller í viðtali við Smartland árið 2022. Þá sagði hún að þau hefðu hætt saman um tíma.

„Við Chris tók­um sam­an aft­ur, við vor­um aðskil­in í smá tíma þar sem mig langaði heim og þurfti tíma til að vinna í mér en gerðum okk­ur svo grein fyr­ir því að við elsk­um hvort annað af öllu hjarta og get­um ekki hugsað okk­ur að lifa án hvors ann­ars. Það er góð til­finn­ing að hafa fundið sinn besta vin og sálu­fé­laga til að fara í gegn­um lífið með,“ seg­ir Sara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál