Tori Spelling í vandræðum vegna neysluorgíu

Tori Spelling.
Tori Spelling. mbl.is/AFP
Hver man ekki eftir hinni goðsagnakenndu sjónvarpsþáttaröð Beverly Hills 90201? Þar áttu allir endalaust af peningum. Tori Spelling var ein aðaleikvennanna í þáttunum og lék þar Donnu Martin.
Spelling er nú sjálf lent í verulegum peningavandræðum ef eitthvað er að marka frétt í People. 
Samkvæmt heimildum miðilsins hefur kreditkortafyrirækið American Express stefnt henni vegna skuldar upp á um það bil 5 mkr. Mamma Tori hefur tjáð sig um málið og sagt skuldina vera tilkomna vegna íburðarmikils lífsstíls leikkonunnar. Móðirin segist greiða allt sem dótturinni og barnabörnum tengist sem teljist til nauðsynja eins og afborgana af húsi, skólagöngu barna og mat. Annað vilji hún ekki borga.
Þrátt fyrir að Tori Spelling vilji ekki tjá sig um málið núna hefur hún áður tjáð sig um skuldsettan lífsstíl og segir skýringu á blankheitum sínum vera þá að hún hafi verið alin upp við óheft aðgengi að peningum. Spelling er, eins og kunnugt er, dóttir fjömiðlamógúlsins Aaron Spelling en fékk ekkert af auðæfum hans að honum látnum. Það er spurning hvort Spelling ætti ekki að fá leiðsögn hjá Áslaugu Guðrúnardóttur en hún gaf út bókina, Mínimalískur lífsstíll á dögunum.
Tori Spelling.
Tori Spelling. mbl.is/AFP
Tori Spelling.
Tori Spelling. mbl.is/AFP
Tori Spelling.
Tori Spelling. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál