Fataskápur Meghan á ferðalagi hennar og Harry Bretaprins hefur vakið mikla athygli, ekki síst fyrir hversu mikið hann kostar. Þrátt fyrir að nokkrar flíkur hennar séu á viðráðanlegu verði eru sumar á við útborguð mánaðarlaun fólks.
Í dag, föstudag, klæddist Meghan einstaklega fallegum síðum kjól á ströndinni í Ástralíu. Kjóllinn sem er frá merkinu Martin Grant er fáanlegur á vefversluninni Moda Operandi og kostar þar 1.222 evrur eða um 165 þúsund íslenskar krónur.
Meghan klæddist líka bláum kjól frá merkinu Roksanda. Kjóllinn fæst í netverslun Harrods en er ekki á allra færi þar sem hann kostar 1.299 pund eða um 200 þúsund íslenskar krónur.
Þrátt fyrir verðmiðana þá verður það ekki tekið af Meghan að hún tók sig vel út í kjólunum. Nú er bara að vona að hún noti kjólana oft og mikið.