Arna Sif samdi til tveggja ára

Arna Sif Ásgrímsdóttir við undirritun á samningi sínum við Þór/KA …
Arna Sif Ásgrímsdóttir við undirritun á samningi sínum við Þór/KA í dag. Ljósmynd/Facebook-síða Þórs/KA

Arna Sif Ásgrímsdóttir samdi við uppeldisfélag sitt, Þór/KA, sem er ríkjandi Íslandsmeistari í knattspyrnu kvenna. Samningur Örnu Sifjar sem kemur til Þórs/KA frá ítalska liðinu Verona er til tveggja ára.

Arna Sif lék fyrst með Þór/KA í efstu deild árið 2007 og lék með liðinu til ársins 2014. Arna Sif var mátt­ar­stólpi í liði Þórs/KA þegar liðið varð Íslandsmeistari árið 2012 í fyrsta skipti í sögu félagsins.

Arna Sif sem hefur leikið 12 A-landsleiki fór frá Þór/​KA til Gauta­borg­ar og lék í sænsku úr­vals­deild­inni sum­arið 2015, en hún lék svo með Val sum­arið 2016 og síðasta sum­ar, áður en hún gekk í raðir Verona síðasta haust.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert