Þór/KA lagði Val í miklum spennuleik

Lára Kristín Pedersen skorar sigurmarkið.
Lára Kristín Pedersen skorar sigurmarkið. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Þór/KA og Valur áttust við í stórleik í átta liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í dag. Jafnt var í hálfleik, 1:1, en markadrottningar liðanna, Stephany Mayor og Margrét Lára Viðarsdóttir skoruðu úr vítaspyrnum í fyrri hálfleiknum.

Valur sótti töluvert meira í seinni hálfleik en Mayor skoraði aftur og kom Þór/KA í 2:1. Valur jafnaði svo leikinn skömmu fyrir leikslok en strax í næstu sókn skoraði Lára Kristín Pedersen sigurmark Þórs/KA.

Valskonur sóttu stíft allt til leiksloka og var Sandra Sigurðardóttir markvörður komin í sóknina. Þór/KA fékk sénsa á að nýta sér það en fleiri urðu mörkin ekki og Þór/KA gat fagnað ógurlega í leikslok.

Þór/KA 3:2 Valur opna loka
90. mín. Valur fær hornspyrnu +2 Bianca bjargar á síðustu stundu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert