Sex marka jafntefli í Kórnum

Frá leiknum í Kórnum í kvöld.
Frá leiknum í Kórnum í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

HK og Grótta skildu jöfn, 3:3, í lokaleik fyrstu umferðar 1. deildar kvenna í fótbolta í Kórnum í kvöld.

Arnfríður Auður Arnarsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Gróttu og Brookelynn Entz gerði slíkt hið sama fyrir HK.

Arnfríður kom sínu liði í 1:0 og 2:1. Þess á milli jafnaði Birna Jóhannsdóttir. Lovísa Davíðsdóttir Scheving kom Gróttu svo í 3:1 á 51. mínútu.

Eftir það var komið að Entz. Hún minnkaði muninn úr víti á 66. mínútu og tryggði síðan HK-ingum annað stigið með þriðja marki HK á 71. mínútu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert